Götulokanir á Þingeyri vegna lagnaframkvæmda
Framkvæmdir standa nú yfir við gatnamót Aðalstrætis og Fjarðargötu. Vegna lokana á framkvæmdasvæðinu er hjáleiðir um Brekkugötu og Sjávargötu, og eru vegfarendur beðnir um að fylgja merkingum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að gatnamót Aðalstrætis og Fjarðargötu verði opnuð aftur seinni part vikunnar, ef framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun.
Á síðari stigum framkvæmdarinnar munu framkvæmdir færast að Brekkugötu. Nánari upplýsingar um áhrif á umferð og mögulegar lokanir verða kynntar þegar þar að kemur.
Vegna framkvæmdanna geta orðið tímabundin þrýstingsföll á vatnskerfi Þingeyrar og einnig getur komið til tímabundinna vatnslokana við framkvæmdasvæðið á meðan unnið er við tengingar og breytingar á lögnum.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu, fylgja merkingum og virða lokanir meðan á framkvæmdum stendur. Við þökkum fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið er að nauðsynlegum endurbótum á fráveitu- og veitukerfi sveitarfélagsins.
Fréttin var uppfærð 27.07.2026