Heiðursborgari Ísafjarðarbæjar 97 ára
02.10.2026
Fréttir
Kristján Þór Kristjánsson og Jón Páll Halldórsson.
Í tilefni af 97 ára afmæli Jóns Páls Halldórssonar, heiðursborgara Ísafjarðarbæjar, færði Kristján Þór Kristjánsson, formaður bæjarráðs, honum blóm og hlýjar árnaðaróskir fyrir hönd Ísafjarðarbæjar. Með heimsókninni var Jóni Páli sýndur sá heiður og þakklæti sem bæjarfélagið ber til hans fyrir einstakt framlag hans til samfélagsins og menningarlífsins í gegnum tíðina.
Nánar má lesa um útnefninguna í eldri frétt á vef Ísafjarðarbæjar.