Húsfélög geta sótt um styrki vegna hleðsluaðstöðu

Húsfélög fjölbýlishúsa hafa nú kost á að sækja um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða fyrir rafbíla á sameiginlegum bílastæðum. Styrkjunum er ætlað að auðvelda húsfélögum að undirbúa og ráðast í framkvæmdir sem styðja við aukna notkun rafbíla.

Um er að ræða styrki fyrir húsfélög fjöleignarhúsa með átta íbúðir eða fleiri. Hægt er að fá allt að 5 milljónir króna í styrk fyrir hvert verkefni, en styrkurinn getur þó ekki numið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi kostnaðar framkvæmdarinnar.

Styrkhæfur kostnaður getur meðal annars verið vegna lagnaframkvæmda, undirbúnings fyrir uppsetningu hleðslustöðva og breytinga á rafmagnstengingum húsa.

Umsóknarfrestur rennur út kl. 15:00 þann 1. október 2026.

Nánari upplýsingar um skilyrði styrkjanna og umsóknarferlið er að finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.