Íbúafundur um ofanflóðavarnir á Flateyri
19.11.2026
Fréttir
Hvar standa framkvæmdir við ofanflóðavarnir á Flateyri og hvað tekur við næst?
Íbúum gefst tækifæri til að fá svör við þessum og fleiri spurningum á íbúafundi mánudaginn 23. nóvember kl. 17:00–18:30 í Samkomuhúsinu á Flateyri.
Farið verður yfir stöðu framkvæmda, framvindu verkefnisins og fyrirhuguð næstu skref. Fulltrúar þeirra aðila sem koma að framkvæmdum og hönnun varnanna verða á fundinum og svara fyrirspurnum.
Á fundinum verða Jóhann Birkir Helgason frá Verkís, Dagný Ísafold Kristinsdóttir frá Borgarverki, Aðalheiður E. Kristjánsdóttir frá Landmótun, Gísli Steinn Pétursson frá Verkís og Hinrik Jóhannsson frá Ofanflóðasjóði. Corinna Hoffman, verkefnisstjóri hjá FSRE, tekur þátt í gegnum Teams.
Íbúar eru hvattir til að mæta, kynna sér stöðu verkefnisins og taka þátt í umræðum.
Allir velkomnir.
Fundinum verður streymt: