Íris Arnlaugsdóttir ráðin í starf mannauðsstjóra

Íris Arnlaugsdóttir
Íris Arnlaugsdóttir

Íris Arnlaugsdóttir hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar og mun hefja störf að hluta í nóvember en svo að fullu í byrjun nýs árs 2027.

Íris hefur MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun, diplóma í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og markaðsfræði og BA-próf í stjórnmálafræði. Þá hefur hún sótt fjölmörg námskeið sem nýtast beint í starfinu, meðal annars á sviði mannauðsstjórnunar, leiðtogahæfni, sáttamiðlunar, samningatækni og stjórnsýslulaga.

Íris býr yfir umfangsmikilli reynslu af stjórnunar- og mannauðsmálum. Hún starfaði sem deildarstjóri þjónustusviðs hjá Íslandssíma á árunum 2000 til 2005 og síðar sem þjónustustjóri á velferðarsviði hjá Reykjavíkurborg (2011-2016), þar sem hún fór með mannaforráð, sinnti mannauðsmálum, skipulagði fræðslu og þjálfun starfsfólks og veitti leiðsögn og ráðgjöf.

Auk þessa hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, hjá Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar og sem sjálfstæður ráðgjafi, þar sem hún hefur meðal annars sinnt mannauðsverkefnum, verkferlagreiningum, stefnumótun, skýrslugerð, ráðgjöf og umbótaverkefnum. Um þessar mundir starfar hún sem verkefnastjóri hjá Verkís.

Við bjóðum Írisi hjartanlega velkomna til starfa.