Ísafjörður: Bilun í götulýsingu í hluta miðbæjar

Bilun er í hluta götulýsingarkerfis og hefur hún áhrif á lýsingu í hluta miðbæjarins, við Pólgötu, Mjallargötu og Fjarðarstræti.

Talið er að bilun í einu götuljósi valdi því að lýsingin á svæðinu detti út. Samkvæmt upplýsingum frá Orkubúi Vestfjarða er unnið að því að finna orsökina og koma götulýsingunni aftur í lag.

Vonast er til að viðgerð ljúki öðru hvoru megin við helgina. 

Ísafjarðarbær biðlar til vegfarenda um að sýna aðgát á þeim svæðum þar sem götulýsing er óvirk á meðan unnið er að viðgerð.