Ísafjörður: Bilun í vatnslögn
17.09.2026
Fréttir
Ísafjörður: Unnið er að viðgerðum vegna bilunar í vatnslögn fyrir efribæ á Ísafirði og hefur vatn verið tekið af húsum í Stakkanesi, Sætúni, Miðtúni, Seljalandsvegi, Engjavegi, Urðavegi, Torfnesi og Hlíf. Bilunin er umfangsmikil og má búast við að viðgerðavinna muni standa yfir í 3 klukkustundir fimmtudaginn 17. september.