Ísafjörður: Götulokanir vegna tendrunar jólaljósa
27.11.2026
Fréttir
Vegna tendrunar jólaljósa á Silfurtorgi, laugardaginn 28. nóvember, verða tímabundnar götulokanir :
- Hafnarstræti kl. 14:00–17:00, frá Stjórnsýsluhúsi niður Aðalstræti að gatnamótum Aðalstrætis og Skipagötu.
- Silfurgata að Aðalstræti kl. 15:30–17:00.
Við biðjum vegfarendur um að sýna aðgát og þökkum fyrir sýndan skilning.