Ísafjörður: Snjómokstur

Unnið er að snjómokstri á Ísafirði laugardaginn 14. nóvember, nú er verið að ryðja allar forgangsleiðir bæjarins. Að því loknu verður hafist handa við snjómokstur í íbúagötum.

Þegar er búið að moka meirihluta göngustíga á Ísafirði og verður áfram unnið að því að tryggja gott aðgengi og greiðar samgöngur.

Ísafjarðarbær biður íbúa um að gæta þess eftir fremsta megni að ökutæki hindri ekki snjómoksturstæki við störf. 


Snjómokstur