Ísafjörður: Suðurgata lokuð 8. september – Uppfærð frétt
07.09.2026
Fréttir
Vegna vegaframkvæmda verður Suðurgata lokuð fyrir umferð þriðjudaginn 8. september frá kl. 7:00 og frameftir degi. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu og virða lokanir og merkingar á svæðinu. Bent er á að velja aðrar leiðir meðan á framkvæmdum stendur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og er íbúum og öðrum vegfarendum þakkað fyrir skilninginn.
Uppfærð 8. september kl. 14:00:
Vegna malbikunarframkvæmda á Suðurgötu verður gatan lokuð fyrir umferð til kl. 9:00 miðvikudaginn 9. september.