Lengri opnunartími sundlauga á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að auka opnunartíma sundlauganna á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri um fjórar klukkustundir á föstudögum yfir vetrartímann. Breytingin tekur gildi 1. janúar 2027.

Aukið aðgengi að sundlaugunum

Tillagan var áður tekin fyrir í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og er markmiðið að bæta aðgengi íbúa að sundlaugunum. Áætlaður viðbótarkostnaður vegna aukins opnunartíma er um 5 milljónir króna á ári og verður gert ráð fyrir honum í fjárhagsáætlun ársins 2027.

Nýtingin metin að loknum vetri

Nýting sundlauganna yfir veturinn verður greind og niðurstöður lagðar fyrir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vorið 2027.Greiningin verður höfð til hliðsjónar við áframhaldandi endurskoðun á auknum opnunartíma sundlauganna veturinn 2027–2028.