Númerslausir bílar fjarlægðir af Æðartanga

Í næstu viku verður hafist handa við að fjarlægja númerslausa bíla við Æðartanga á Ísafirði.

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða setti viðvörunarmiða á bílana í byrjun október og var eigendum veittur frestur til 20. október til að bregðast við. Sá frestur er nú liðinn.

Eigendur eru hvattir til að fjarlægja ökutæki sín sem allra fyrst.

Athygli er vakin á að áfallinn kostnaður vegna þessa fellur á eigendur.

Nánari upplýsingar um verklag Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.