Ný eining við Sólborg – staða framkvæmda og áætluð aðlögun

Framkvæmdir við nýja einingu við leikskólann Sólborg eru á áætlun samkvæmt nýjustu upplýsingum frá tæknideild Ísafjarðarbæjar. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði afhent í lok nóvember.

Eftir afhendingu þarf nokkra daga til að undirbúa húsnæðið fyrir starfsemina og flytja barnahópa á milli deilda. Við það losnar rými á yngstu deild leikskólans fyrir börn sem nú eru á biðlista. Miðað við núverandi áætlun er stefnt að því að móttaka nýrra barna geti hafist í byrjun desember.

Áætlað er að taka börnin inn í tveimur hópum. Foreldrar fá nánari upplýsingar um upphafsdag og aðlögun síns barns þegar tímasetningar liggja fyrir.

Við gerum okkur grein fyrir því að óvissa um upphaf leikskólagöngu hefur áhrif á foreldra, en eins og staðan er núna benda upplýsingar ekki til frekari tafa. Verði breytingar á áætluninni verða foreldrar á biðlista upplýstir um þær eins fljótt og unnt er.