Ný heimasíða strætó og rauntímakort

Ný heimasíða fyrir strætisvagna Ísafjarðarbæjar er komin í loftið með það að markmiði að gera upplýsingar um þjónustuna skýrari og aðgengilegri fyrir farþega.

Samhliða nýju síðunni hefur verið tekið í notkun rauntímakort þar sem hægt er að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í beinni.

Þegar strætisvagn er á ferð birtist hann á kortinu og staðsetning hans uppfærist á tíu sekúndna fresti. Hafi vagn ekki hreyfst í klukkustund hverfur hann af kortinu. Þannig ætti kortið á hverjum tíma að gefa skýra mynd af þeim vögnum sem eru í akstri.

Stóru skólabílarnir birtast einnig á rauntímakortinu.

Kerfið hefur verið prófað undanfarna tvo daga og hefur virkað vel.

Með nýju heimasíðunni og rauntímakortinu verður því einfaldara fyrir farþega að nálgast upplýsingar um Strætó og sjá hvar vagnarnir eru hverju sinni.

Vefur SVÍ