Nýjar reglur um upplýsinga- og auglýsingaskjái

Nýjar reglur um notkun upplýsinga- og auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins voru samþykktar samhljóða á fundi bæjarstjórnar 29. október.

Skjáirnir munu gefa sveitarfélaginu nýja leið til að koma upplýsingum á framfæri með einföldum og sýnilegum hætti í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar. Þeir geta meðal annars nýst til að vekja athygli á viðburðum, þjónustu sveitarfélagsins og mikilvægum tilkynningum.

Samkvæmt reglunum er heimilt að takmarka eða stöðva birtingu auglýsinga á skólatíma ef starfsemi grunnskóla eða hagsmunir nemenda gefa tilefni til.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi annast umsýslu efnis frá íþróttafélögum og öðrum aðilum tengdum íþrótta- og æskulýðsstarfi sveitarfélagsins og mun upplýsa viðeigandi aðila um hvernig félögin geta komið efni á framfæri á skjánum.

Reglurnar hafa áður verið til umfjöllunar hjá skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, þar sem gerðar voru breytingar á fyrri drögum áður en þeim var vísað til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.

Með reglunum er komið á formlegu fyrirkomulagi um notkun skjáanna í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar.