Nýtt ungmennaráð fær aukið vægi í stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt nýja samþykkt fyrir ungmennaráð sveitarfélagsins og samhliða gert breytingar á reglum og erindisbréfum sem styrkja stöðu ráðsins og þátttöku ungs fólks í ákvörðunum sveitarfélagsins.
Raddir ungs fólks
Ungmennaráð er ráðgefandi samráðsvettvangur barna og ungmenna gagnvart bæjarstjórn, nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Markmið þess er að tryggja að raddir ungs fólks heyrist við stefnumótun og ákvarðanatöku, efla lýðræðislega þátttöku og skapa vettvang þar sem ungmenni geta komið sínum sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri.
Níu aðalfulltrúar á aldrinum 13-20 ára
Samkvæmt nýju samþykktinni verður ungmennaráð skipað níu aðalfulltrúum og jafnmörgum til vara. Fulltrúar verða tilnefndir af grunnskólum sveitarfélagsins, Menntaskólanum á Ísafirði og einnig með opinni auglýsingu fyrir ungmenni sem ekki eru í grunn- eða framhaldsskóla. Ráðið verður skipað ungmennum á aldrinum 13 til 20 ára með lögheimili í Ísafjarðarbæ.
Hlutverk ráðsins verður meðal annars að veita umsagnir um mál sem varða börn og ungmenni, koma með tillögur og ábendingar til sveitarfélagsins, eiga í virku samráði við félög og hópa ungs fólks og standa fyrir árlegu ungmennaþingi þar sem mótuð eru áherslumál fyrir starf ráðsins.
Tillöguréttur, þóknun og skipun
Ein umfangsmesta breytingin er að ungmennaráð fær nú rétt til að tilnefna áheyrnarfulltrúa á fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar með málfrelsi og tillögurétt. Með því skapast bein tenging milli ungmennaráðs og þeirrar nefndar sem fer með mörg af helstu málefnum barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Jafnframt var samþykkt að fulltrúar í ungmennaráði fái greidda þóknun fyrir störf sín í samræmi við reglur sveitarfélagsins um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa.
Á næstu vikum verður unnið að því að skipa ráðið samkvæmt nýju samþykktinni og koma starfi þess af stað. Markmiðið er að efla þátttöku ungs fólks í samfélaginu og tryggja að sjónarmið þess fái aukið vægi við þróun og uppbyggingu Ísafjarðarbæjar.