Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð Ísafjarðarbæjar

Langar þig að hafa áhrif á málefni ungmenna í Ísafjarðarbæ og taka þátt í að móta samfélagið þitt? Nú er verið að óska eftir umsóknum frá ungmennum sem hafa áhuga á að taka sæti í Ungmennaráði Ísafjarðarbæjar.

Auglýst er eftir 2 aðalmönnum og 2 varamönnum úr hópi ungmenna sem hafa lögheimili í Ísafjarðarbæ og eru á aldrinum 16–20 ára, en stunda ekki nám í grunn- eða framhaldsskóla.

Ungmennaráð er vettvangur þar sem ungt fólk getur komið sjónarmiðum sínum á framfæri, tekið þátt í umræðu um málefni sem snerta börn og ungmenni og haft áhrif á þróun og stefnumótun sveitarfélagsins. Þátttaka í ráðinu veitir einnig dýrmæta reynslu af lýðræðislegri þátttöku, samstarfi og verkefnavinnu.

Auk þeirra fulltrúa sem nú er auglýst eftir eiga fulltrúar grunn- og framhaldsskóla sæti í ungmennaráðinu. Nemendafélög skólanna tilnefna þá fulltrúa.

Við mat á umsóknum verður meðal annars litið til:

• Áhuga umsækjenda á samfélagsmálum og þátttöku í ungmennaráði.

• Framtíðarsýnar og hugmynda um málefni ungmenna.

• Þess að samsetning ráðsins endurspegli sem best fjölbreytileika ungmenna í sveitarfélaginu með tilliti til aldurs, búsetu og bakgrunns.

• Lögbundins kynjajafnvægis í ráðinu.

Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs og starfsmaður ungmennaráðs fara yfir umsóknir og leggja fram rökstudda tillögu til bæjarstjórnar sem skipar í ráðið.

Skipunartími fulltrúa er eitt ár í senn, frá 1. ágúst til 31. júlí, og heimilt er að endurskipa fulltrúa.

Við hvetjum öll áhugasöm ungmenni til að sækja um og taka þátt í að hafa áhrif á þróun samfélagsins í Ísafjarðarbæ.

Umsókn í ungmennaráð