Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Ísafjarðarbæjar 2027
30.09.2026
Fréttir
Aðildarfélögum HSV er bent á að nú er hægt að sækja um styrki til uppbyggingar og viðhalds mannvirkja og aðstöðu sem styðja við íþróttastarf í sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til og með 14. október. Reglur og umsóknarform hafa verið send félögunum.
Allar upplýsingar gefur Dagný Finnbjörnsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á netfanginu dagnyf@isafjordur.is