Óskað eftir húsbúnaði fyrir móttöku flóttafólks

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir aðstoð frá íbúum og fyrirtækjum við að útvega eftirfarandi húsbúnað vegna samræmdrar móttöku flóttafólks:

Tvö rúm

Tvö til fjögur náttborð

Einn örbylgjuofn

Sjónvarp

Þvottavél

Þurrkara

Velferðarsvið vill jafnframt færa öllum þeim sem hafa stutt við starfsemina undanfarin ár innilegar þakkir. Með stuðningi samfélagsins hefur tekist að standsetja alls 14 íbúðir á síðustu fjórum árum. Þær hafa ekki eingöngu nýst flóttafólki heldur einnig einstaklingum og fjölskyldum sem hafa þurft aðstoð á félagslegum forsendum við að koma sér upp heimili.

Þessi samstaða og velvild hefur skipt sköpum fyrir marga íbúa og erum við afar þakklát fyrir þann stuðning sem samfélagið hefur sýnt.

Ef einhverjir geta lagt til umbeðinn húsbúnað eða vilja fá nánari upplýsingar eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hörpu Stefánsdóttur á Velferðarsviði Ísafjarðarbæjar. Netfang: harpast@isafjordur.is