Samningur um móttökuhús við Hrafnatanga
24.09.2026
Fréttir
Silviu Rotariu og Björgvin Jónsson frá Allverki við undirritun samnings um móttökuhúss.
Ísafjarðarbær hefur undirritað samning við All verk ehf. um byggingu móttökuhúss við Sundabakka á Hrafnatanga á Ísafirði. Fyrirtækið átti lægsta tilboðið í verkið þegar tilboð voru opnuð. All verk ehf. lægstbjóðandi í móttökuhús við Hrafnatanga á Ísafirði.
Móttökuhúsið er liður í áframhaldandi uppbyggingu hafnarsvæðisins á Ísafirði og mun bæta aðstöðu og þjónustu fyrir notendur hafnarinnar.