Samstarf við Act Alone

Arnar Jónsson í einleiknum Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson. 2014
Arnar Jónsson í einleiknum Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson. 2014

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að endurnýja samstarfssamning við Act Alone fyrir árin 2027-2029, að fenginni tillögu frá menningarmálanefnd sem fjallaði um málið á fundi sínum 14. september sl.

Act Alone hefur verið mikilvægur þáttur í menningarlífi Ísafjarðarbæjar og hefur fest sig í sessi sem einn af áberandi menningarviðburðum sveitarfélagsins. Hátíðin hefur stuðlað að fjölbreyttu framboði sviðslista og menningarviðburða fyrir íbúa og gesti, auk þess að efla sýnileika svæðisins sem vettvangs menningar og skapandi greina.

Með endurnýjun samningsins er lagður grunnur að áframhaldandi samstarfi á næstu þremur árum og stuðningi við uppbyggingu og þróun hátíðarinnar.

Tillagan var lögð fram af menningarmálanefnd og samþykkt samhljóða í bæjarstjórn á fundi 17. september 2026.