Skólastarf hafið í Ísafjarðarbæ

Skólaárið 2026–2027 er hafið í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Skólarnir voru settir mánudaginn 24. ágúst og kennsla samkvæmt stundaskrá hófst daginn eftir. Alls stunda 502 nemendur nám í grunnskólum sveitarfélagsins.

Grunnskólar sveitarfélagsins eru fjórir:

  • Grunnskólinn á Ísafirði
  • Grunnskóli Önundarfjarðar
  • Grunnskólinn á Þingeyri
  • Grunnskólinn á Suðureyri

Fyrirkomulag skólasetningar var mismunandi eftir skólum og fengu nemendur og foreldrar nánari upplýsingar frá sínum skóla.

Ísafjarðarbær útvegar grunnskólanemendum ritföng og námsgögn án endurgjalds. Nýskráning nemenda í grunnskóla fer fram í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins.

Nýr sameiginlegur vefur grunnskólanna

Nýr sameiginlegur vefur grunnskóla Ísafjarðarbæjar er kominn í loftið. Þar má nálgast fréttir og tilkynningar frá skólunum, viðburðadagatöl og upplýsingar fyrir nemendur og foreldra. Einnig eru þar upplýsingar um þjónustu skólanna, starfsfólk, skólastefnur og leiðir til að tilkynna grun um einelti.

Vefurinn er enn í vinnslu og allar ábendingar um efni, framsetningu eða það sem betur má fara eru vel þegnar. Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir er ritstjóri vefsins og má senda henni ábendingar á jonasv@isafjordur.is.

Sameiginlegar dagsetningar skólaársins

Nokkrar dagsetningar eru sameiginlegar á skóladagatölum grunnskólanna. Haustfrí verður 15. og 16. október og vetrarfrí 18. og 19. febrúar. Litlu jól verða haldin í öllum skólunum 18. desember.

Sameiginlegir starfsdagar verða 18. september, 19. október, 4. janúar og 22. febrúar.

Skólaslit verða 4. júní í Grunnskólanum á Ísafirði, Grunnskólanum á Þingeyri og Grunnskólanum á Suðureyri. Grunnskóla Önundarfjarðar verður slitið 3. júní.

Frístundastarf fyrir börn og ungmenni

Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar og félagsmiðstöðvar sveitarfélagsins bjóða upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn og ungmenni. Á vefnum LÍFIÐ Í ÍSAFJARÐARBÆ er einnig að finna yfirlit yfir Íþrótta- og tómstundastarf á svæðinu. Frístundakistan verður haldin þriðjudaginn 8. september í Grunnskólanum á Ísafirði og hvetjum foreldrar og forráðamenn í sveitarfélaginu til að mæta og kynna sér starfið.

Leikskólastarf í Ísafjarðarbæ

Í dag eru 137 börn skráð í leikskóla Ísafjarðarbæjar og aðlögun er hafin í flestum þeirra. Beðið er eftir að viðbyggingar við Eyrarskjól og Sólborg verði teknar í notkun. Að því loknu verður hægt að bjóða börnum á biðlista leikskólapláss.

Ísafjarðarbær óskar nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólanna góðs gengis á nýju skólaári.