Skráningarsíða viðburða liggur niðri

Vegna kerfisvillu er sem stendur ekki hægt að skrá nýja viðburði á vef Ísafjarðarbæjar. Villan hefur áhrif á nýskráningar viðburða og því koma engir nýir viðburðir inn fyrr en búið er að laga hana.

Unnið er að því að finna orsök vandans og lagfæra villuna eins fljótt og auðið er.

Á meðan er því ekki víst að upplýsingar á síðunni Viðburðir séu tæmandi og birtist villuboð á skráningarsíðu. 

Áframdeilingar á samfélagsmiðlum

Sem stendur er ekki hægt að senda inn viðburði í gegnum vefinn. Hins vegar er hægt að deila upplýsingum um viðburði á Facebook og Instagram ef @ísafjarðarbær er merkt í færslunni.

Ísafjarðarbær biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.