Staða innritunar barna á leikskóla

Skóla- og tómstundasvið vill upplýsa foreldra barna sem eru á biðlista eftir leikskólavist á Eyrarskjóli og Sólborg um stöðu mála og fyrirhugaða úthlutun leikskólaplássa.

Framkvæmdir standa nú yfir við leikskólann Eyrarskjól þar sem unnið er að uppsetningu viðbótareiningar til að fjölga leikskólaplássum. Gangi framkvæmdir samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að hægt verði að taka á móti börnum í nýju einingunni í september.

Þegar framkvæmdum við Eyrarskjól lýkur hefjast framkvæmdir við leikskólann Sólborg. Samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir að viðbótareining þar verði tilbúin í nóvember.

Við fylgjumst náið með framgangi framkvæmdanna og munum upplýsa foreldra um leið og nánari upplýsingar liggja fyrir eða breytingar verða á áætluðum verklokum.

Markmið okkar er að geta tekið á móti börnum eins fljótt og aðstæður leyfa og um leið tryggja öruggt og vandað leikskólastarf.

Við þökkum foreldrum fyrir þolinmæði og skilning .