Staða viðhaldsverkefna Ísafjarðarbæjar fyrstu níu mánuði ársins 2026
Fyrstu níu mánuði ársins 2026 var bókaður kostnaður vegna viðhalds hjá Ísafjarðarbæ samtals 357,4 m.kr. Gildandi fjárheimildir, að teknu tilliti til samþykktra viðauka, nema 492 m.kr. og höfðu því um 73% fjárheimilda verið nýtt í lok september.
Heildarstaða viðhalds er innan fjárheimilda, þótt staða einstakra verkefna og málaflokka sé mismunandi.
Viðhald gatna og opinna svæða
Viðhald gatna er stærsti einstaki viðhaldsliður aðalsjóðs. Til loka september höfðu verið bókaðar 62,8 m.kr. vegna viðhalds gatna. Upphafleg fjárheimild var 50 m.kr. en 15 m.kr. viðauki var samþykktur á árinu. Gildandi fjárheimild er því 65 m.kr.
Til viðbótar höfðu verið bókaðar 5,9 m.kr. vegna umhirðu garða, gatna og opinna svæða og 3,8 m.kr. vegna götulýsingar, meðal annars vegna framkvæmda Orkubús Vestfjarða við nýja kúpla í Hafnarstræti.
Skólar og leikskólar
Unnið hefur verið að fjölbreyttum viðhaldsverkefnum í skólum og leikskólum sveitarfélagsins.
Í sumar lauk umfangsmiklu viðhaldsverkefni við Grunnskólann á Ísafirði þar sem anddyri skólans var flísalagt.
Við Eyrarskjól hefur verið unnið að endurbótum á útgönguhurðum til að bæta loftvist. Þá fór einnig fram umfangsmikið viðhald á lóð skólans.
Á Flateyri hefur verið ráðist í endurbætur á skólalóð við Grænagarð. Jafnframt hefur verið brugðist við lekavandamálum í kringum glugga.
Við Grunnskóla Önundarfjarðar voru tvær körfur á skólalóðinni endurnýjaðar. Jafnframt hefur verið unnið að smáspennulögnum og smávægilegu viðhaldi innanhúss.
Við Grunnskólann á Þingeyri hefur verið unnið að endurnýjun gólfefna og smáspennulögnum. Þá voru tvær körfur á skólalóðinni endurnýjaðar.
Við Laufás á Þingeyri voru gluggar málaðir að utan og lýsing innanhúss endurnýjuð að hluta.
Á Suðureyri var unnið að glerjun við leikskólann Tjarnarbæ og útsog sett upp í kjallara Grunnskólans á Suðureyri. Þar er jafnframt unnið að frekari viðhaldsframkvæmdum.
Alls höfðu 34,2 m.kr. verið bókaðar á einstök skóla- og leikskólaverkefni sem sundurliðuð eru í stöðuyfirliti Eignasjóðs.
Íþróttamannvirki
Bókaður kostnaður vegna viðhalds íþróttamannvirkja nam 56,2 m.kr. í lok september, samanborið við 60,1 m.kr. fjárheimild.
Í Sundhöll Ísafjarðar var laugarkerfið endurnýjað í heild sinni. Jafnframt var lokið fyrsta áfanga nauðsynlegra gluggaskipta, neyðarhurð bætt við og unnið að endurbótum á loftræstikerfi.
Þakkantur var endurnýjaður á Íþróttahúsinu á Torfnesi og skemmdir á aðalvellinum voru lagaðar í sumar.
Í Íþróttamiðstöðinni á Flateyri var skipt um þak á hluta íþróttahússins. Frekara viðhald er fyrirhugað á næsta ári, meðal annars á sundlaugarkerfinu.
Í Íþróttamiðstöðinni á Þingeyri var skipt um hluta glugga við sundlaugina og haldið verður áfram á næsta ári.
Í Íþróttamiðstöðinni á Suðureyri var settur niður nýr heitur pottur.
Menningar- og þjónustubyggingar
Ýmis viðhaldsverkefni hafa farið fram í menningar- og þjónustubyggingum sveitarfélagsins.
Í Félagsheimilinu í Hnífsdal hefur verið unnið að áframhaldandi gluggaskiptum.
Umfangsmiklum endurbótum sem hófust árið 2025 á Félagsheimilinu á Þingeyri lauk á árinu.
Á tjaldsvæðinu á Þingeyri var þjónustuhúsið málað.
Á tjaldsvæðinu á Flateyri var komið upp grávatnstanki fyrir húsbíla og salerni endurnýjað.
Á tjaldsvæðinu á Ísafirði var unnið að viðhaldi hurða í þjónustuhúsinu auk þess sem rafmagnskössum var skipt út að hluta.
Viðhald veitukerfa
Í B-hluta er staða viðhalds almennt innan fjárheimilda en viðhald Vatnsveitu er komið fram úr heildaráætlun. Til loka september höfðu verið bókaðar 40,9 m.kr. á móti 35,5 m.kr. fjárheimild. Þar vegur einkum þungt viðhald dreifikerfis og heimæða. Á móti er verulegt svigrúm innan annarra liða Vatnsveitu.
Viðhald Hafnarsjóðs nam 43,2 m.kr. af 49,5 m.kr. fjárheimild og viðhald fráveitu 11,9 m.kr. af 28 m.kr. fjárheimild.
Staða verkefna út árið
Þótt um þrír fjórðu hlutar heildarfjárheimilda til viðhalds hafi verið nýttir eftir fyrstu níu mánuði ársins er nokkuð svigrúm eftir til áframhaldandi verkefna. Sérstaklega eru ónýttar fjárheimildir í ýmsum skóla-, þjónustu- og íþróttamannvirkjum, opnum leikvöllum og fráveitu.
Rétt er þó að hafa í huga að bókaður kostnaður endurspeglar ekki alltaf nákvæmlega verklega stöðu. Reikningar geta borist eftir að vinnu lýkur og einstök verkefni því verið lengra komin en bókhaldsstaðan ein og sér gefur til kynna.