Þjónusta efld og 2,3 milljarðar í fjárfestingar
Þjónustustefna Ísafjarðarbæjar fyrir árin 2027–2030, framkvæmdaáætlun fyrir árin 2027–2032 og fjárhagsáætlun ársins 2027 voru tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Málunum var vísað til síðari umræðu
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir 681 milljónar króna afgangi í samstæðu A- og B-hluta og 472 milljóna króna afgangi í A-hluta. Samanlagðar tekjur eru áætlaðar 9,9 milljarðar króna.
Fasteignaskattshlutfall á íbúðarhúsnæði verður óbreytt, 0,48%, og margar gjaldskrár hækka ekki, meðal annars í skólum og íþróttastarfsemi.
Áhersla er lögð á að efla þjónustu við börn og ungmenni. Meðal annars verður aðgangur að skólasálfræðingum aukinn, félagsmiðstöðvastarf eflt og opnunartími sundlauga á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri rýmkaður.
Fjárfestingar eru áætlaðar 2,3 milljarðar króna. Stærstu verkefnin eru bygging slökkvistöðvar, ofanflóðavarnir á Flateyri og móttökuhús fyrir farþega skemmtiferðaskipa.
Í máli bæjarstjóra við fyrri umræðu kom fram:
„Við settum okkur metnaðarfull fjárhagsleg markmið fyrr í haust, og það er ekki auðvelt að fylgja þeim. En það er markmiðið, það er nefnilega enn erfiðara að hafa engin viðmið við að taka erfiðu ákvarðanirnar.
Áætlunin sýnir sveitarfélag í vexti með traustan rekstur, en hún krefst aðhalds ef við ætlum að ná fjármálamarkmiðum okkar á næstu árum.“
Samhliða fjárhagsáætluninni var ný þjónustustefna tekin til fyrri umræðu. Hún fjallar um þjónustustig í byggðum sveitarfélagsins, meðal annars í skóla- og tómstundamálum, sundlaugum og sorphirðu. Við mótun hennar var meðal annars byggt á íbúafundum á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri og samráði á Betra Íslandi.