Tillaga að nýju skipuriti umhverfis- og eignasviðs
Tillaga að breyttu skipuriti umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 22. október. Bæjarráð vísaði málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Í minnisblaði Gylfa Ólafssonar bæjarstjóra kemur fram að talsverður fjöldi mála og umfangsmikil verkefni falli undir sviðið. Þar eru meðal annars nefnd vatns- og fráveita, sorpmál, Fasteignir Ísafjarðarbæjar, Eignasjóður og almenningssamgöngur.
Fram undan eru meðal annars bygging verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði, bygging slökkvistöðvar og húsa fyrir hafnarsjóð, yfirtaka hluta verkefna heilbrigðiseftirlits og afgreiðsla skipulagstillagna sem eru í vinnslu.
Í minnisblaðinu er lagt til að stofnuð verði ný staða deildarstjóra. Deildarstjórar yrðu þá tveir, deildarstjóri skipulags og mannvirkja og deildarstjóri umhverfis og framkvæmda. Lagt er til að verkaskipting deildanna taki mið af verkaskiptingu skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Tillaga að nýju skipuriti.
Lagt er til að uppfært skipurit verði fellt inn í heildarskipurit Ísafjarðarbæjar og lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra