Undirbúningur vegna almyrkva gengur vel

Undirbúningur vegna almyrkva hefur gengið vel og fjölmörg verkefni hafa verið unnin síðustu vikur til að tryggja sem besta upplifun fyrir íbúa og gesti sem sækja Ísafjarðarbæ heim.

 

„þetta verður sögulegur viðburður og starfsfólk Ísafjarðarbæjar er búið að vinna alla heimavinnuna til að hægt sé að njóta hans til fullnustu“ segir Gylfi Ólafsson bæjarstjóri

Íbúar hafa tekið vel við sér og fjölmargir þegar sótt sólmyrkvagleraugu. Gleraugun verða áfram afhent á auglýstum afhendingarstöðum á opnunartíma á meðan birgðir endast.

Vestfirðir eru meðal vinsælustu staða landsins til að upplifa almyrkvann. Áætlað er að yfir 30 skemmtiferðaskip með um 50.000 farþega verði fyrir undan Vestfirði þegar myrkvinn á sér stað.

Ljósmengun

Til að draga úr ljósmengun verður slökkt á götulýsingu sem Orkubú Vestfjarða stýrir, auk lýsingar á hafnarsvæðinu og á skíðasvæðinu þar sem því verður við komið. Íbúar sem eru með útilýsingu tengda ljósnema eru jafnframt hvattir til að slökkva á henni á meðan almyrkvinn stendur yfir.

Tjaldsvæði og safnstaðir

Mikil aðsókn er á tjaldsvæði sveitarfélagsins. Á tjaldsvæðinu á Ísafirði er farið að þéttast en enn er gott pláss á Flateyri og Þingeyri. Ekki er hægt að taka frá tjaldstæði fyrirfram og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar hefur komið fyrir ferðasalernum á safnstöðum og lokið nauðsynlegum undirbúningi vegna aukins gestafjölda.

Umferðastýring

Vegagerðin sér um umferðarstýringu og vegalokanir eftir þörfum. Gestir og íbúar eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um umferð og færð áður en lagt er af stað.

Ísafjarðarbær hvetur íbúa til að njóta þess að vera á einum besta stað landsins til að upplifa almyrkvann og taka vel á móti þeim fjölmörgu gestum sem sækja Vestfirði heim vegna þessa einstaka náttúruviðburðar.

Nánari upplýsingar um almyrkvann, safnstaði og gagnlega tengla má finna á Almyrkvi á sólu