Veturnætur fagna komu vetrar

Veturnætur fagna komu vetrar

Veturnætur, árleg lista- og menningarhátíð Ísafjarðarbæjar, fara fram dagana 21.-25. október. Hátíðin er jafnan haldin í kringum fyrsta vetrardag, sem í ár ber upp á 24. október. Þema Veturnátta 2026 er hafís og mun hann setja bláan blæ á bæinn með fjölbreyttri dagskrá menningar, lista og samfélagsviðburða

Menning, samvera og sköpun í forgrunni

Veturnætur skapa vettvang fyrir fólk til að koma saman og njóta fjölbreyttrar menningar og skapandi viðburða. Þema hátíðarinnar í ár er hafís, sem mun setja bláan blæ á hátíðina og skapa skemmtilega umgjörð um dagskrána. Menning, samvera og sköpun verða þó sem fyrr í forgrunni.

Fjölbreytt dagskrá 

Dagskrá Veturnátta er fjölbreytt og þar ættu flest að finna eitthvað við sitt hæfi. Boðið verður upp á meðal annars tónleika, sýningar, opið hús, fjölskylduviðburði og ýmsa menningar- og samfélagsviðburði. Viðburðir fara fram á mismunandi stöðum og gefa íbúum og gestum gott tækifæri til að njóta menningar, samveru og sköpunar þegar veturinn gengur í garð.

Líf og fjör verður í miðbæ Ísafjarðar fimmtudaginn 22. október þegar verslanir lengja opnunartíma til kl. 21. Fjölmargar verslanir verða opnar frá kl. 19-21 og bjóða gestum upp á ýmis tilboð í tilefni Veturnátta. Tilvalið er því að leggja leið sína í miðbæinn og njóta kvöldsins.

Kynntu þér dagskrána og finndu þína viðburði á Veturnætur 2026