Viðburðasíða og ábendingavefur komin í lag
Við viljum upplýsa íbúa og samstarfsaðila um að viðburðasíða Ísafjarðarbæjar er nú komin í lag á ný eftir viðgerðir. Af því tilefni hvetjum við alla viðburðahaldara á svæðinu til að senda okkur upplýsingar um viðburði svo hægt sé að kynna þá á viðburðadagatalinu og gera þá sýnilegri fyrir íbúa og gesti.
Vert er að minna á að viðburðir sem skráðir eru á viðburðadagatalið eru jafnframt teknir saman og kynntir í vikulegu fréttabréfi Ísafjarðarbæjar. Með því fá viðburðir aukna dreifingu og ná til stærri hóps íbúa og gesta á svæðinu. Hvetjum áhugasama að skrá sig á póstlistann.
Í tengslum við viðgerðina kom jafnframt í ljós að ábendingavefur bæjarins hafði legið niðri um tíma. Því er mögulegt að sumar ábendingar hafi ekki skilað sér eða fengið eðlilega afgreiðslu.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar bilanir kunna að hafa valdið. Þeir íbúar sem hafa sent inn ábendingu en ekki fengið viðbrögð eru hvattir til að hafa samband við Ísafjarðarbæ eða senda ábendinguna inn á ný.
Við þökkum fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið var að lagfæringum og vonumst til að þjónustan verði nú áreiðanlegri og að íbúar og viðburðahaldarar nýti sér þessi verkfæri sem best.
Við hlökkum til að taka á móti fjölbreyttum viðburðum víðs vegar að af svæðinu og halda íbúum upplýstum um það sem er fram undan.