Dagbók bæjarstjóra 12.–17. október: Vika 15
Dagbók bæjarstjóra 12.–17. október í 15 viku í starfi.
Lögregluumdæmi, vel heppnuð kvikmyndahátíð, heimsókn á skíðasvæðið og samstarf á norðurslóðum var meðal viðfangsefna minna í vikunni.
Bæjarstjórnarfundur var haldinn á þriðjudegi, sem er óvenjulegt en helgast af vetrarfríi í skólum síðar í vikunni. Stærstur hluti málanna kom frá skipulags- og mannvirkjanefnd.
Á vef bæjarins birtist auglýsing um laust starf sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs. Í auglýsingunni segir meðal annars:
Nýtt skipurit fyrir sviðið verður sett í október af bæjarstjórn. Samkvæmt því munu tveir deildarstjórar skipta með sér hlutverkum sviðsins, en útfærsla verkaskiptingar og innleiðing skipuritsins verður eitt af fyrstu verkefnum nýs sviðsstjóra. Aukinn fjöldi stöðugilda endurspeglar aukið umfang verkefna sem framundan er, bæði beint hjá bænum og í uppbyggingu í samfélaginu. Meðal verkefna næstu misseri er uppbygging verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði, bygging slökkvistöðvar og húsa fyrir hafnasjóð, yfirtaka hluta verkefna heilbrigðiseftirlits og afgreiðsla fjölmargra skipulagstillagna sem eru í vinnslu.
Í pósthólfið mitt kom svo afar gleðilegur tölvupóstur frá austurríska leikstjóranum Hermanni Weiskopf, en hann var þá nýkominn heim eftir að hafa verið á PIFF-kvikmyndahátíðinni. Hann sá sig knúinn til að senda bæjarstjóranum skeyti þó ég hafi sökum anna ekki getað verið viðstaddur hátíðina. Ég birti þess í stað hluta af bréfinu:
I would like to emphasize how much I appreciated The Pigeon International Film Festival under the artistic direction of Fjölnir Baldursson and the managing direction of Steingrímur Rúnar Guðmundsson together with the whole film festival team.
In my career as a director and actor, I have attended numerouse film festivals all around the world including big ones like Venice, Cannes and Berlin, but this one made a particularly strong impression on me. Both for the quality and selection of the films I was able to see and for the people and film professionals who participated - coming literally from all over the world as well as from Iceland itself.
A huge thank you to the entire city and to everyone who supports this wonderful cultural event! I truly hope to return for the next year edition and even for some private visit in this beautiful town and the breathtaking landscape around.

Skíðasvæði og gjaldfrjáls hressing
Á miðvikudag heimsótti ég Ragnar Högna Guðmundsson forstöðumann skíðasvæðisins. Við fórum yfir það mikla starf sem unnið hefur verið og unnið er að við að skipta út obbanum af rafbúnaði skíðalyftanna, drena og lagfæra yfirborð, setja upp snjógirðingar, klippa trjágróður, undirbúa fyrir snjóframleiðslu og fleira. Nýr troðari er væntanlegur á næstu vikum sem gaman verður að taka á móti.

Á samfélagsmiðlum kom upp umræða um nýlega ákvörðun um gjaldfrjálsa hressingu í skólum. Þetta hefur verið í boði að hluta nú þegar og því felst ákveðin samræming í þessu. Þó er það alltaf svo að taka þarf mið af aðstæðum á hverjum stað og skólastjórnendum falið að útfæra þetta í samræmi við aðstæður á hverjum stað. Fréttin sem tengdist málinu var uppfærð.

Fyrsti vetrardagur
Fimmtudagur var fyrsti dagur í vetrarfríi í grunnskóla barnanna minna. Veðrið var við hæfi, snjór yfir öllu og prýðilegt hitastig til að gera snjókarla.

Bæjarráð kom þó saman á hefðbundnum tíma. Meðal mála voru fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglumála. Bæjarráð bókaði svo:
Fyrirhuguð fækkun lögregluembætta á Íslandi
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar lýsir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu sem fela í sér fækkun lögregluembætta í þrjú embætti.
Bæjarráð leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður og yfirstjórn löggæslu í landshlutanum færð annað. Mikilvægt er að stjórnun og ákvörðunarvald lögreglunnar sé áfram á Vestfjörðum, þar sem þekking á staðháttum, samfélaginu og þeim áskorunum sem íbúar Vestfjarða standa frammi fyrir er til staðar.
Vestfirðir búa við sérstakar landfræðilegar aðstæður, langar vegalengdir, fjallvegi og tíðar samgöngutruflanir vegna veðurs og náttúruvár. Þá hefur reynsla undanfarinna ára sýnt hversu mikilvægt er að viðbragðsaðilar og almannavarnir búi yfir staðbundinni þekkingu og geti tekið skjótar ákvarðanir þegar vá steðjar að og þá sérstaklega náttúruhamfarir.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að efla lögregluna á landsvísu, bæta starfsaðstæður hennar og tryggja öfluga og faglega löggæslu. Slík markmið verða hins vegar ekki sjálfkrafa tryggð með sameiningu embætta og aukinni miðstýringu. Þvert á móti telur bæjarráð brýnt að efla lögregluþjónustu á Vestfjörðum með nægum mannafla, bættum búnaði og að tryggja þurfi stjórnunina á Vestfjörðum.
Í bæjarráði var einnig tekið fyrir minnisblað mitt um að taka aftur upp þátttöku í samstarfsvettvangi bæjarstjóra á norðurslóðum. Þar kemur meðal annars fram:
Samstarfsvettvangur bæjarstjóra á norðurslóðum — Arctic Mayors’ Forum — er alþjóðlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaga á norðurslóðum þar sem bæjarstjórar og aðrir kjörnir fulltrúar taka beinan þátt. Vettvangurinn var formlega stofnaður á Akureyri haustið 2019 af ellefu sveitarfélögum í sjö ríkjum. Markmiðið er að tryggja að bæjarstjórar og kjörnir fulltrúar taki þátt í stjórnun norðurslóða svo rödd íbúa heyrist, að styðja sjálfbæra þróun og öflug samfélög. […]
Ísafjarðarbær var með í verkefninu árið 2019 en tíð bæjarstjóraskipti, heimsfaraldur og áhugaleysi bundu enda á þátttökuna.
Ísafjarðarbær á hinsvegar að taka skýra stöðu í umræðu um norðurslóðir og láta rödd sína heyrast, jafnt í samstarfi við aðra og á eigin forsendum. Á þeim grunni stóð ég fyrir málþingi á hringborði norðurslóða í síðustu viku og á þeim grunni tel ég eðlilegt að Ísafjarðarbær endurveki aðild sína að samstarfsvettvanginum. Ég legg því til að bæjarráð samþykki að Ísafjarðarbær taki aftur upp þátttöku í samtökunum.
Ég held að sá angi verkefnisins sem snýr að ungmennaskiptum sé ekki síst áhugaverður. Skrifstofustjórann hitti ég í síðustu viku og þá ræddum við samstarfið frá ýmsum hliðum. Hún var mjög áfram um að Ísafjarðarbær yrði aftur með.
