Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
577. fundur 13. október 2026 kl. 17:00 - 17:21 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir forseti
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Guðni Páll Viktorsson varamaður
    Aðalmaður: Tinna Rún Snorradóttir
  • Hannibal Hafberg aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu á breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2025, vegna Eyrarkláfs undir afþreyingar og ferðamannasvæði, þar sem að auki muni falli úr gildi reitur aðveitustöðvar, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem nefndin telur að brugðist hafi verið við athugasemdum HMS fyrir auglýsingu.

Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða auglýst samhliða breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu á nýju deiliskipulagi Eyrarkláfs, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða afgreidd samhliða.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri, og Helgi Karl Guðmundsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Deiliskipulag Gleiðarhjalli - breyting - Eyrarkláfur - 2025100174

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Gleiðarhjalla vegna Eyrarkláfs, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða afgreidd samhliða.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Frístundahús við Núpsveg - 2026090275

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu á skipulagslýsingu breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar við Núp í Dýrafirði, dags. 22. september 2026, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Deiliskipulag frístundahúsasvæðis við Núpsveg, Núpi í Dýrafirði. - 2026090276

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu skipulagslýsingar á nýju deiliskipulagi að Núpi í Dýrafirði sunnan Ingjaldssandsvegar, greinargerð, dags. 22. september 2026, í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Umsókn um lóð 11 L236900 í Reykjanesi undir framleiðsluhús - 2026090301

Tillaga frá 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki að samþykkja lóðarúthlutun Saltverks ehf. við Reykjanes 11 innan jarðarinnar Reykjanes L141585.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Hrafnatangi 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025030093

Tillaga forseta um að bæjarstjórn samþykki áfangaskiptingu framkvæmda og greiðslu gjalda vegna uppbyggingar Nora Seafood ehf. á Hrafnatanga 4 á Ísafirði.

Á 668. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var lögð fram umsókn Hallvarðar Aspelund f.h. Nora Seafood ehf. um að skipta gatnagerðargjöldum í þrjá hluta með vísan í 9 gr. samþykktar Ísafjarðarbæjar um um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald holræsa í Ísafjarðarbæ. Samhliða umsókn var lögð fram áfangaskipting framkvæmdar með hliðsjón af greiðslum gjaldanna ásamt minnisblaði Kristjáns Svan Kristjánssonar, byggingarfulltrúa, dags. 25. febrúar 2026. Nefndin vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs, sem samþykkti umsóknina og tillögu byggingarfulltrúa um áfangaskiptingu framkvæmdar og greiðslu gjalda á 1363. fundi sínum þann 12. mars 2026, en það fyrirfórst að vísa málinu til fullnaðarsamþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - breyting ungmennaráð og BsVest - 2026090303

Tillaga frá 1382. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 23. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, vegna nýrra samþykkta ungmennaráðs og Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.

Fyrri umræða um breytingar á samþykktum fór fram á 576. fundi bæjarstjórnar þann 1. október 2026 þar sem málinu var vísaði til síðari umræðu.

Er málið nú lagt fram til síðari umræðu og samþykktar bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Bæjarráð - 1383 - 2609027F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1383. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 1. október 2026.

Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

10.Hafnarstjórn - 275 - 2610002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 275. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 7. október 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Guðni Páll Viktorsson.

Lagt fram til kynningar.

11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 680 - 2609029F

Lögð fram til kynningar fundargerð 680. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 7. október 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

12.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 679 - 2609024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 679. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2026.

Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 50 - 2609026F

Lögð fram til kynningar fundargerð 50. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 21. september 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Öldungaráð - 20 - 2609025F

Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar öldungaráðs, en fundur var haldinn 1. október 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:21.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?