Dagbók bæjarstjóra 2.–7. nóvember: Vika 18

Dagbók bæjarstjóra 2.–7. nóvember

Sviðaveisla, tilkynning um skrímsli, númerslausir bílar, hrekkjavökukaffi og viðaukareglur.

Vinna hefur staðið yfir síðustu vikur við að endurgera þak Stjórnsýsluhússins sem var orðið löngu tímabært. Aðgengi að húsinu hefur verið skert vegna hættu á að byggingarefni eða verkfæri falli niður, bæði Pollgötumegin og hótelmegin. Verkið er langt komið.

Ég skaust upp á bókasafn í hádeginu á mánudag þar sem mín biðu nokkrar nýútkomnar bækur sem ég hafði pantað. Þar var mér snarlega boðið í hrekkjavökukaffi með starfsfólki safnahússins. Í húsinu eru í náinni samvinnu bóksafn, héraðsskjalasafn, listasafn og ljósmyndasafn.

Nýja bókin um Sigvalda Thordarson er þarna á borðinu. Eftir hann eru nokkur hús hér vestra, eins og tvö hús við Engjaveg (18 og 27), Eyrargötu 3 (a.m.k. þakhæð skv. yfirliti á bls. 393), nokkur húsa rafstöðvanna í Engidal, Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík (sjá bls. 198) og barnaskólinn á Tálknafirði.

Klukkan 17:00 hófst aðalfundur íbúasamtakanna Átaks á Þingeyri. Fundurinn fór fram í Blábankanum, að mörgum viðstöddum. Að loknum stuttum formlegheitum fékk Gunnar Páll Eydal orðið til að fara yfir það hvernig aðalskipulag Ísafjarðarbæjar lítur út í drögum. Að því loknu fékk ég orðið og fór yfir ýmis mál sem hafa verið til skoðunar í bæjarkerfinu. Kristján Þór Kristjánsson formaður bæjarráðs og Guðni Páll Viktorsson formaður hafnarstjórnar sátu einnig með okkur.

Viðaukareglur

Fimmtudagurinn byrjaði í bæjarráði þar sem við tókum meðal annars til umfjöllunar tillögur að nýjum reglum um viðauka. Hér er á ferðinni dæmi um mál sem bæjarfulltrúar og embættismenn þurfa að hafa á hreinu en á helst að koma lítið við íbúa ef allt gengur vel. Gerð viðauka er eðlilegur hluti af rekstri sveitarfélags, en það er gert þegar meiriháttar frávik hefur orðið frá fjárhagsáætlun — yfirleitt til kostnaðarauka. Fjárhagsáætlunargerð getur auðvitað aldrei fangað þá óvissu sem alltaf er um framtíðina. Starfsmenn bæjarins þurfa að hafa skýrt umboð til að haga rekstri og framkvæmdum eftir því sem þeir telja að sé heppilegast miðað við þær aðstæður sem eru uppi, en svo þurfa að vera skýrar leikreglur um það hvenær bæjarstjórn þarf að samþykkja breyttar forsendur.

Þetta var að öðru leyti fjarfundadagur. Ég sat tvo nefndafundi Alþingis, fyrst í efnahags- og viðskiptanefnd til að fjalla um bandorminn svokallaða, og síðar í fjárlaganefnd til að fjalla um fjárlög. Einnig tók ég viðtöl við nokkra af umsækjendum um stöðu sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs.

Hvesta og draslaragangur

Á föstudag fór ég í heimsókn í Hvestu. Hvesta hæfingarstöð er vinnustaður og dagþjónusta fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í Hvestu er einstaklega góður andi, hlýja og jákvæðni.

Frá Hvestu fór ég niður á Suðurtanga þar sem Guðmundur Sigurlaugsson var að draga númerslausa bíla upp á fleti til að koma þeim í burtu. Það er ekki bara á Suðurtanga sem bílar og drasl safnast upp, þetta er víða um bæ og í öllum hinum þorpunum okkar.

Ég hringdi svo eftir hádegið í fjölmarga verktaka og hvatti þá til að ganga snyrtilega um. Það kom upp sú hugmynd að boðað yrði til fundar einhvern tímann á næstu vikum til að fara yfir hvað er leyfilegt og hvað ekki, og hvernig hægt er að standa saman gegn þessu.

Svið og skrímslagangur

Þegar ég var kominn heim á föstudag bankaði uppá heima hjá mér ungur drengur sem gengur í leikskólann Eyrarskjól. Hann hafði um morguninn séð spor í sandinum sem bentu til að skrímsli hefði verið þar á ferð. Hann afhenti mér tilgátumynd af skrímslinu og bað mig um að koma þessum upplýsingum til þartilbærra yfirvalda. Allar nánari upplýsingar um mögulegar skrímslaferðir eru vel þegnar, en á meðan einungis þessi eina vísbending liggur fyrir tel ég ekki tilefni til að aðhafast frekar að sinni.

Kiwanisklúbburinn Básar hélt svo á laugardagskvöld sviðaveislu og bauð mér sérstaklega að koma. Á boðstólum voru köld svið, reykt svið, tælensk svið, slegin svið og margt fleira. Almennt er ég ekki með sviðsskrekk og áhugamaður um allt sem þjóðlegt er, en í þetta skiptið verður nú að viðurkennast að þarna var ég fulltrúi pitsukynslóðarinnar. En ég tók þátt í uppboði og hreppti ljómandi fínan gúmmíbát, nokkuð sem er í hrópandi ósamræmi við átak Landverndar um nægjusaman nóvember.