Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1387. fundur 05. nóvember 2026 kl. 08:10 - 09:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson varaáheyrnarfulltrúi
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Ráðning sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs - 2026100109

Bæjarstjóri upplýsir bæjarráð um næstu skref í ráðningu sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, en umsagnarfrestur rann út 27. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun - 2026110023

Lagðar fram til samþykktar nýjar reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka. Jafnframt lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 3. nóvember 2026, til skýringar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun.

3.Forsendur fjárhagsáætlana 2027-2030 - Sambandið - 2026060129

Lagðar fram til kynningar minnisblað Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðings Sambandsins, dags. 2. nóvember 2026, þar sem upplýst er um uppfærðar forsendur fjárhagsáætlunar sveitarfélaga 2027-2031.
Lagt fram til kynningar.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - byggðatengdar veiðiheimildir - 2026010014

Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu, dags. 29. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 223/2026, "Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir." Umsagnarfrestur er til og með 12. nóvember 2026.
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar meðan unnið er að umsögn með málinu.

5.Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða m.t.t. lagabreytinga 1. jan. 2027 - 2026090035

Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar heilbrigðisnefnda og landshlutasamtaka um heilbrigðiseftirlit en fundur var haldinn þann 26. október 2026, vegna lagabreytinga sem taka gildi um næstu áramót.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar umhverfis- og framkvæmdanefndar.

6.Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði - fundargerðir stjórnar 2026 - 2026020075

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 6. og 7. fundar 2026 stjórnar stjórnsýsluhússins á Ísafirði en fundir voru haldnir 26. ágúst og 13. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010

Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Önundarfjarðar, en fundur var haldinn 24. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir og ýmis erindi 2026 - 2026100246

Lögð fram til kynningar fundargerð 101 fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, en fundur var haldinn 2. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 45 - 2610015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 29. október 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?