Dagbók bæjarstjóra 24.–29. ágúst 2026
Dagbók bæjarstjóra dagana 24.–29. ágúst 2026, í sjöundu viku í starfi.
Kollabúðafundur og svæðisskipulag, fjármálastefna og Sæunnarsund. Og vestfirskt bergmál.
Fundir fastanefnda eru komnir á fullt og maður á fullt í fangi með að halda í við fundadagskrárnar og fundargerðirnar.
Mánudagurinn byrjaði snemma með heimsókn í Grunnskólann á Ísafirði. Skólinn var settur í skömmtum um morguninn frá kl. 9, en ég kom kl. 8, hélt stutta ræðu um menntastefnu, húsnæðismál grunnskólans og fleira.

Fimmtudagur til fjármálastefnu
Ýmsir undirbúnings- og samráðsfundir tóku yfir þriðjudag og miðvikudag sem ekki er orð á hafandi hér. Fimmtudagurinn byrjaði á bæjarráðsfundi þar sem afgreiddir voru viðaukar vegna mála sem hafa verið til umræðu síðustu vikur í bæjarráði. Sérstaklega var tekið fyrir minnisblað okkar Eddu Maríu fjármálastjóra um fjármálastefnu.

Fjárhagsstaða Ísafjarðarbæjar styrktist umtalsvert á tímabilinu með samspili aðhaldssams rekstrar og hagstæðra ytri aðstæðna. Þannig var rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 671 m.kr. árið 2025 og eigið fé samstæðunnar jókst á milli ára. Jafnframt hefur skuldastaða sveitarfélagsins batnað verulega og skuldaviðmið lækkað. Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun er afkoma A-hluta áfram áskorun.
Á sama tíma hafa stjórnvöld unnið að endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga. Skýrsla þar að lútandi kom út í september 2025, Endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnarlaga. Meðal þeirra atriða sem eru til skoðunar er að sveitarfélög setji sér sérstaka fjármálastefnu og fjármálaáætlun til fimm ára í stað þriggja ára. Að loknu samráði um innihald skýrslunnar var frumvarp til breytinga á sveitarstjórnarlögum lagt fyrir Alþingi á vorþingi 2026 (mál 505). Málið náði ekki fram að ganga, en þrátt fyrir það er eðlilegt að miða við þær, enda má búast við að málið verði aftur sent til umfjöllunar á þingi og hljóti afgreiðslu lítið breytt.
Þar sem þau fjárhagslegu markmið sem sveitarfélagið setti sér á síðasta kjörtímabili fanga alla þætti fjármálastefnu er ætlað að gera, er því einnig lagt til að orðanotkun verði breytt til samræmis. Það sem á síðasta kjörtímabili var kallað fjárhagsleg markmið verður núna fjármálastefna, og hún gildi til fimm ára.
Meirihlutanum er mikið í mun að fjármálastefna verði sett í breiðri sátt þvert á flokka. Bæjarráð bókaði stuðning við stefnuna almennt en lagði til nokkrar breytingar sem gerðar verða áður en hún verður lögð fyrir fyrsta fund bæjarstjórnar í september.
Kollabúðarfundur
Af bæjarráðsfundi hentumst við á Reykhóla. Þar var fundur stjórnar Vestfjarðastofu og síðar stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga. Meðal efnis voru byggðamál, málefni Háskólaseturs Vestfjarða, erindisbréf Ungmennaráðs, Gullkistan Vestfirðir og fleira.

Frá Reykhólum fórum við inn að Kollabúðum í Þorskafirði þar sem nýtt Svæðisskipulag Vestfjarða var undirritað. Undirbúningur tók stóran hluta síðasta kjörtímabils, og er þetta stór áfangi í samstarfi sveitarfélaganna á svæðinu, þar sem hnykkt er á ýmsum sameiginlegum áherslumálum í samfélagsþróun, samgöngum og orkumálum.

Valið á staðsetningunni var engin tilviljun. Við Kollabúðir var í júní 1849 haldinn fundur um málefni Vestfjarða þar sem fulltrúar víða að af kjálkanum komu. Upp frá þessu voru haldnir árlegir fundir til ársins 1868. Þó Jón Sigurðsson hafi ekki komið á fundina voru þeir með hans vilja og vitund og þaðan fékk hann nesti til málflutnings síns á endurreistu Alþingi, enda var hann þingmaður Ísafirðinga um langt skeið. Mörg merkileg framfaramál áttu sér upphaf á Kollabúðafundum, eins og upphaf sjómannafræðslu og samgöngumál.

Árið 1979 lét Fjórðungssamband Vestfirðinga reisa minnisvarða um þessa fundi. Í stuttri ræðu sem ég hélt sem formaður Fjórðungssambandsins endursagði ég ýmis atriði úr grein Halldórs Kristjánssonar í Sveitarstjórnarmálum 1980 og flutti fjögur vers úr ljóði Matthíasar Jochumssonar, Fyrsta vorþingið, sem þar er birt.

Jökull og firðir
Á föstudag fékk ég í heimsókn Ósk Gunnarsdóttur og Ísólf Haraldsson. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum dreymir Kaleo að halda Bergmál á Vestfjörðum næsta sumar og er undirbúningur að hefjast undir stjórn Óskar sem framkvæmdastjóra hátíðarinnar. Dagsetningar, fyrirkomulag og staðsetning eru enn óráðin en verið er að horfa á sumarið 2027. Einhversstaðar þarf að byrja, og þau keyrðu hér um alla firði og dali og mældu hektara, aðgengi að rafmagni, gistimöguleika og samgöngustjórnun. Ég fór með þeim á nokkra staði og enduðum niðri á höfn þar sem við tókum mynd.

Á laugardag var Sæunnnarsundið þreytt, og ég plataður til að vera með skemmtiræðu í matarveislu sem haldin var í Breiðadal að sundinu loknu. Þessi viðburður er þrælskemmtilegur og var áberandi í spjalli við þátttakendur hvað þeim fannst utanumhaldið og undirbúningurinn vel heppnaður. Ég fékk auðvitað hvatningu til að taka þátt næst, og ég hef því ár til að annaðhvort undirbúa mig eða kokka upp einhverja afsökun um að ég sé með saltofnæmi.
