Dagbók bæjarstjóra 30. ágúst–5. september 2026: Vika 9
Dagbók bæjarstjóra dagana 30. ágúst–5. september 2026, í níundu viku í starfi.
Útilistaverk, heimsókn í Steypustöðina, fyrsti bæjarstjórnarfundur haustsins og spjall um tónlist voru meðal atriða í dagskrá bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar þessa vikuna.
Á sunnudaginn fór ég upp í Netagerðina, en þar voru listamennirnir Freyja Stígsdóttir og Björn Loki að leggja lokahönd á útilistaverk á gámum sem þar eru. Gámunum er ætlað að fela ýmislegt dót sem verktakar hér í bæ þurfa að geyma milli verkefna, en þar sem gámarnir voru ekki augnayndi sjálfir var upplagt að skreyta þá með þessum hætti. Verkefnið—Grámar í sparifötunum—var styrkt af styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar, sem aftur er fjármagnaður með hluta af hafnagjöldum af skemmtiferðaskipum. Sjóðnum er meðal annars ætlað að fjármagna fegrunarverkefni og er hluti af stefnu um málaflokkinn frá 2024.
Það er auðvitað af nógu að taka þegar kemur að stöðum sem þyrfti að fegra, en á hinn bóginn eru margir undurfallegir staðir í bæjunum. Þannig er talsvert af útilistaverkum í sveitarfélaginu, svo sem verk Kyle Hughes-Odgers á Grunnskólanum á Ísafirði, Flatbird-myndirnar á Flateyri og málverkið á Skólagötu á Suðureyri sem var raunar endurnýjað í sumar. Auk þess eru styttur og minnismerki víða. Mér finnst útilistaverk vera frábær því þau eru aðgengileg, ókeypis fyrir alla, alltaf opin og lífga upp á hversdaginn.

Á þriðjudag fór ég niður á Suðurtanga að líta til með framkvæmdum og landfyllingum þar. Ég bauð mér svo í kaffi á Steypustöðina, en þar tók Helgi Hjartarson, annar eigandinn, á móti mér með mjólk út í og góðu spjalli.
Steypustöðin hefur verið í auga stormsins þegar kemur að framkvæmdum á svæðinu síðustu tvo áratugina. Fyrirtækið fór utarlega á tangann langt á undan bæði öðrum fyrirtækjum og áður en lokið var við að gera þær landfyllingar sem síðan hafa orðið. Hús þeirra og athafnasvæði liggur nokkuð lægra en síðar hefur verið ákveðið að hafa byggðina og það skapar nokkur vandræði.
Steypustöðin er með stórt verkefni í tengslum við verksmiðjubygginguna í Súðavík, auk annarra verkefna og Helgi var brattur.

Fjármálastefna samþykkt
Á miðvikudag var stór og langur fundur til að byrja undirbúning á framkvæmdaáætlun ársins 2027. Fjárhagsáætlunarvinna er farin að setja rækilegt mark sitt á dagleg störf á skrifstofum bæjarins.
Á fimmtudagsmorgun var bæjarráðsfundur þar sem gengið var frá kaupum á nýjum snjótroðara fyrir skíðasvæðið. Kaupin eru hluti af margra ára endurnýjunaráætlun fyrir skíðasvæðið og búnaði sem því tengist.
Þá fór nokkur tími í að ræða aðalskipulag en endurskoðun á því er komið á fleygiferð í öllum fastanefndum auk skipulags- og mannvirkjanefndar.
Seinnipartinn kom bæjarstjórn saman í fyrsta skipti eftir sumarfrí. Aðalmál fundarins var að samþykkja fjármálastefnu fyrir sveitarfélagið. Svona var þessu lýst í frétt á vef bæjarins:
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti einróma á 574. fundi sínum þann 3. september 2026 nýja fjármálastefnu sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2031. Stefnan markar ramma um fjármálastjórn sveitarfélagsins á næstu árum og er ætlað að stuðla að ábyrgri og sjálfbærri rekstrarstefnu. Tillagan var áður til umfjöllunar í bæjarráði og hlaut þar einnig jákvæða afgreiðslu áður en hún var lögð fyrir bæjarstjórn.
Að sögn Gylfa Ólafssonar bæjarstjóra felur stefnan í sér mikilvæga sameiginlega sýn bæjarstjórnar á ábyrga fjármálastjórn út kjörtímabilið.
„Fjármálastefnan sem samþykkt var einróma sýnir að bæjarstjórn er samtaka í því að sýna varfærni og ábyrgð í fjármálum út þetta kjörtímabil. Það er auðvitað skemmtilegra að geta gert allt fyrir alla strax, en til lengri tíma tryggja reglur af þessu tagi betri fjárhagslega framtíð sveitarfélagsins og hjálpa til við að taka erfiðar ákvarðanir. Bæjarstjórn setti sér svipaðar reglur árið 2022 og það var góð reynsla af því. Stjórnvöld hafa verið að undirbúa að setja ákvæði um fjármálastefnu í lög, og við erum því skrefinu á undan.“
Minnisblað okkar Eddu Maríu Hagalín rekur bæði aðdraganda stefnunnar og þær breytingar sem gerðar voru eftir umfjöllun bæjarráðs.

Mér finnst best að hugsa um fjármálastefnuna þannig að hún komi ofanfrá inn í gerð fjárhagsáætlunarinnar. Neðan frá koma launaáætlun, verkefni af ýmsu tagi og ytri aðstæður, til dæmis verðbólguvæntingar. Næstu vikur fara svo í að koma þessu heim og saman.

Á fimmtudag kom einnig stór hópur stjórnenda úr Íslandsbanka sem var hér í haustheimsókn hjá útibússtjóranum Hallgrími Magnúsi Sigurjónssyni. Þau vildu fræðast um ýmis mál í atvinnulífi og samfélagi, og sagði ég þeim frá stöðu mála með mínu nefi. Landsbankinn kom í svipaða ferð fyrr í ár.

Tónlistarföstudagur
Á föstudag fylltist fundaherbergi bæjarstjórnar af menntaskólanemum sem fræddust um meðal annars fráveitumál.

Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar kom og hitti okkur Hafdísi Gunnarsdóttur sviðsstjóra rétt fyrir hádegið. Skólinn er rekinn af sjálfstæðu félagi, Tónlistarfélagi Ísafjarðar, samkvæmt áratugagömlum samningi við bæinn. Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt sem ég hef persónulega fengið að njóta með ýmsum hætti. Það var því gott að fara yfir ýmis mál. Meðal umræðuefna var núverandi framboð af kennslu, fjárhagsstaða og stöðugildi, þróun húsnæðismála eftir að leikskólinn Tangi lokaði, mögulegar breytingar á skólalóð og bílastæðum, og þjónustustig bæði í smærri byggðakjörnunum og inni í grunnskólum sveitarfélagsins.
Þá tæptum við á þeim hugmyndum sem fram komu hjá nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í vor að húsnæðið yrði keypt undir grunnskólastarf. Mér sýnist á öllu að það sé óheppilegt og óraunhæft af hálfu bæjarins, og Tónlistarskólanum er vel fyrir komið þar sem hann er og vill ógjarnan flytja.

Í hádegishléinu komu svo þær fréttir að stjórn húsfélags Stjórnsýsluhússins hefði samþykkt hugmynd um að píanó hússins á 4. hæð yrði lánað inn á skrifstofu bæjarstjóra. Ég spilaði Í faðmi fjalla blárra af þessu tilefni, en tíminn verður að leiða í ljós hversu góð hugmynd þetta er fyrir afköst og móral í húsinu.

Þegar ég er að ganga frá þessum pistli sé ég í fréttum fyrirætlanir um stórfellda fjölgun hleðslustöðva fyrir rafbíla og -trukka. Margir punktar eru á Vestfjörðum og í Ísafjarðarbæ. Frábært.
