Dagbók bæjarstjóra 6.–12. september 2026: Vika 10
Dagbók bæjarstjóra 6.–12. september, í tíundu viku í starfi.
Framtíðarhúsnæði grunnskólans á Ísafirði, aukaaðalfundur Byggðasafns Vestfjarða, framtíð golfíþróttarinnar og 120 ára saga íþróttastarfs á Suðureyri.
Myndasafnið í símanum mínum er farið að verða dálítið skrýtið og ekki til almennrar birtingar; kantsteinar, bílhræ og illgresi er farið að verða áberandi eftir að ég tók við þessu starfi. Slíkar myndir eru ekki skemmtiefni og lítið fyrir augað.
En myndin sem ég tók á laugardaginn á Flateyri er birtingarhæf. Ég tók hana til að eiga í símanum punktstöðu jarðvinnu við ofanflóðavarnir. Framkvæmdir ganga ágætlega, en mikið er enn ógert. Til dæmis á eftir að reisa garð sem mun verja hafnarsvæðið, og mun hann hafa mikil áhrif á útlit þorpsins. Ég hef því óskað eftir því samkvæmt hugmynd frá bæjarfulltrúa að haldinn verði fundur í haust til að kynna framgang hingað til og næstu misseri í verkefninu.

Ég hef verið latur við að fara á völlinn í sumar, en skellti mér þó á leik meistaraflokks karla gegn Þrótti.

Á mánudagsmorgun kom Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri til að fara yfir stöðu mála í Aldrei-heiminum. Aldrei fór ég suður hefur lengi verið með samstarfssamning við Ísafjarðarbæ en honum var breytt umtalsvert fyrir tveimur árum með sérstakri aðkomu styrktarsjóðs hafna Ísafjarðarbæjar. Sjóðurinn var settur upp vegna þess að nauðsynlegt var að íbúar fengju eitthvað fyrir sinn snúð fyrir það ónæði sem stundum hlýst af gestum skemmtiferðaskipanna og hefur gengið vel. Kristján lofaði þrusuhátíð næstu páska.

Í hádegismat var svo sveppasúpa. Engin venjuleg sveppasúpa, heldur sveppasúpa Jónu Símoníu Bjarnadóttur forstöðukonu Byggðasafns Vestfjarða. Safnið er rekið sem sjálfstæð eining undir stjórn bæjarstjóra þriggja aðildarsveitarfélaga. Halda þurfti aukaaðalfund til að ganga frá breytingum á samþykktum, en við nýttum tækifærið til að fara vítt og breitt yfir sviðið. Og borða súpu.
Hér fyrir vestan erum við með margar litlar einingar í söfnum og sýningum. Ég vil skoða með opnum hug að þetta starf verði fellt undir endurskipulagt og öflugra byggðasafn. Í Bolungarvík er Ósvör, í Súðavík Melrakkasetur, og í Arnarfirði er Hrafnseyri, sem gætu vel spilað saman. Þannig nýtist fjármagn betur, stöðugleiki getur orðið meiri í rekstri og tekjur aukist.
Þá lítur út, miðað við framkvæmdaáætlanir og fjárfestingaþörf í lögskylduverkefnum Ísafjarðarbæjar, að ekki verði peningur til að byggja hús á steypta grunninum í Neðstakaupstað. Ef til vill er hægt að finna einhverjar skapandi lausnir með utanaðkomandi aðilum til að klára byggingu þess og gera úr Neðsta enn skemmtilegri viðkomustað ferðamanna og heimafólks. Endurskoðun á þessu öllu er hluti af sáttmála meirihlutans í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og verður viðfangsefni næstu missera.

Gulur fimmtudagur
Bæjarráðsfundurinn á fimmtudag var í lengra lagi enda mörg snúin mál til umfjöllunar. Og góðir gestir. Hlynur Reynisson kom og lýsti óreiðu í stöðu málefna heilbrigðiseftirlitanna. Hann fer fyrir Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða en þarf að leggja starf sitt niður um áramótin.
Minnisblað var lagt fram um að standsetning leikskólanna í Skutulsfirði væru komin yfir áætlun og að við því yrði að bregðast. Var þó samhljómur um að halda áfram með uppsetningu kennslustofanna við Sólborg.
Þá lagði ég fram talsvert ítarlegt minnisblað um framtíðarhúsnæði grunnskóla á Ísafirði. Með því vildi ég halda áfram þeirri vinnu sem hófst í vetur með sérstakri nefnd. Í minnisblaðinu fer ég yfir forsögu málsins, ýmar skipulagsforsendur, ákvæði verndarsvæðis í byggð og fleira.

Ég hafna í minnisblaðinu nokkrum kostum en tiltek sjö kosti til áframhaldandi skoðunar, sjá mynd. Tveir þeirra eru að vísu mjög ólíklegir. Annar er kostur 4 á sundhallarloftinu, sem yrði fremur klunnaleg. Hinn er kostur 7, þriðja hæð ofan á hvíta húsið, en afar hátt er til lofts í þeim tveimur hæðum sem eru í því tuttugu ára gamla húsi og þriðja hæð myndi skaga hátt yfir önnur hús byggðarinnar. Mér virðist vera heppilegast að stækka húsnæðið með nýbyggingu í stað þess að taka nálægt húsnæði undir starfsemina. Samhliða þyrfti að stækka og eða endurskipuleggja skólalóðina og tiltek ég nokkra kosti í þeim efnum.

Bæjarráð bókaði svo: „Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekari valkostagreiningu ásamt því að gera gróft kostnaðarmat. Einnig verður skoðað hvort hægt sé að rýna innra fyrirkomulag með tilliti til betri nýtingar og bættum aðbúnaði starfsmanna.“
Fimmtudagur var annars gulur dagur á bæjarskrifstofunum í tilefni af alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga. Fólk leysti þessa áskorun með ýmsum hætti, ég með gulri peysu.

Fulltrúar Hjallastefnunnar komu svo til að fara yfir stöðu mála í leikskólunum. Hjallastefnan rekur annan leikskólanna á Ísafirði, Eyrarskjól, samkvæmt samningi sem var endurnýjaður fremur nýlega. Við Eyrarskjól verða fljótlega teknar í gagnið nýjar kennslustofur. Ég rakti í því samhengi stöðu mála í húsnæðismálum skóla í Skutulsfirði og mögulega stækkun skólans. Einnig rifjuðum við upp fornleifahauginn sem skólalóðin nær yfir, en merkilegt er hversu óraskaður bæjarhóllinn er miðað við að vera í miðri byggð og hafa verið bústaður í yfir þúsöld. Þá er mönnunin stöðugt til umræðu og hvaða leiðir hægt er að fara til að styðja starfsmenn til náms og styðja skólana við að styðja starfsmenn til náms.

Bóas Hallgrímsson og Alma Guðmundsdóttir frá Hjallastefnunni, Ingibjörg Einarsdóttir leikskólastýra Eyrarskjóls og Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar.
Golf í vexti
Á föstudag þáðum við Kristján oddviti Framsóknar kaffibolla hjá tveimur stjórnarmönnum Golfklúbbs Ísafjarðar; Guðjóni formanni og Daníel stjórnarmanni og fyrrum bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.
Klúbburinn hefur vaxið í iðkendafjölda og byggt upp klúbbhús, hermi, völl og fjölbreytta æfingaaðstöðu. Flest af þessu er orðið of lítið miðað við eftirspurn, og ekki bætir úr skák að nú er í undirbúningi að teygja Tunguhverfi inn dalinn og yfir svokallaðan par-3 völl og á endanum yfir skotsvæði.
Þetta er ekki alveg einfalt mál. Klúbbhúsið er núna á snjóflóðahættusvæði, og því hefur golfhermirinn—sem notaður er allt árið—verið í húsnæði niðri á höfn, alveg ótengdur klúbbhúsinu. Þá er Tungudalur vinsæll til skíðagöngu meðal hversdagsiðkenda og væri gaman að fjölga dögum þar sem hægt er að troða þar göngubrautir. Hugmyndin í nýja skipulaginu er að nýtt hús komi þá í nýja hverfinu, sunnan við Tunguá, og geti þá mögulega sameinað klúbbhús, vélageymslu, búnaðargeymslu meðlima og golfherma, en jafnvel að því væri haldið opnu yfir veturinn þá daga sem skíðabrautir eru troðnar.
En golfarar vilja líka fjölga brautum og tryggja fjölbreytta æfingaaðstöðu, og þar koma nokkrir kostir skoðunar sem setjast þarf yfir.

Síðdegis, í Gallerí Úthverfu, opnaði Daníel Björnsson sýningu listaverka, Sole nero, sem fjalla um sólmyrkva. Eins og oft, er best að skoða sýninguna með eigin augum og því fylgir hér bara mynd af mér með Daníel og frægum rithöfundi sem var í miðri sögu þegar ljósmyndari átti leið hjá.

Laugardagur á Suðureyri
Fallegur regnbogi braust fram þegar Lóa Odds og Valdimar Halldórsson fóru með mér í göngutúr um Suðureyri. Malbiksteymi hefur verið á Suðureyri í sumar og ýmisskonar frágangur er eftir sem við fórum yfir. Lóa sýndi mér svo inn í litlu leirverslunina sína við Rómarstíg og seldi mér krús sem ég held að muni passa hádegiskássunum sem ég fæ mér stundum á skrifstofunni.

Ég fór svo upp í íþróttahús og fékk mér köku. Tilefnið var að fagna 120 ára afmæli íþróttafélagsins Stefnis á Suðureyri. Svava Rán formaður Stefnis flutti afar fróðlegt söguyfirlit áður en boðið var upp á veitingar. Á veggjunum voru sýndir fánar og búningar félagsins í gegnum tíðina. Fyrsti fáninn var hvítblár fáni Íslands með ísaumuðu rauðu hjarta og nafni félagsins og er til í þessu eina snjáða eintaki.
Svava rakti í ræðunni aðdraganda þess að konum var hleypt inn í félagið, að starfsemi hafi aldrei á 120 árum fallið niður svo nokkru nemi og ákvörðunina að verða ekki ungmennafélag. Þar réði meðal annars að félagið hefur allar götur staðið fyrir fjölbreyttu samfélagsstarfi og skemmtunum, til dæmis böllum eins og því sem haldið var svo síðar um daginn. Eljan í starfi Stefnis er alveg makalaus.
