Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1380. fundur 10. september 2026 kl. 08:10 - 10:04 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá
Bryndís Ósk Jónsdóttir, bæjarritari sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða m.t.t. lagabreytinga 1. jan. 2027 - 2026090035

Lagt fram erindi Lilju Magnúsdóttur, formanns heilbrigðisnefndar HEVF, og Hlyns Reynissonar, framkvæmdastjóra HEVF, dags. 2. september 2026, varðandi lagabreytingar vegna niðurlagningar Heilbrigðiseftirlits.

Jafnframt lagt fram minnisblað Axels R. Överby, dags. 3. september 2026, auk bráðabirgðasamantektar Alþingis á verkefnum sem verða eftir hjá sveitarfélögum frá 16. júní 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
Hlynur Reynisson yfirgaf fund kl. 08:45

Gestir

  • Hlynur Reynisson, framkvæmdastjóri HEVF - mæting: 08:10
  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Húseiningar - Efnisveitan - 2026030303

Lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 9. september 2026, um kostnaðarmat vegna uppsetningu á skólastofum við Eyrarskjól og Sólborg.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að halda áfram með verkefnið og koma færanlegum húseiningum við Sólborg og Eyrarskjól í notkun sem allra fyrst.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna viðauka vegna umframkostnaðar og leggja fram ásamt tillögum að því hvernig auknum kostnaði verður mætt.

3.Framtíðarhúsnæði grunnskóla í Skutulsfirði - 2026080151

Lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 25. ágúst 2026, varðandi framtíð skólahúsnæðis í Skutulsfirði.
Bæjarráð telur mikilvægt að niðurstaða komist í framtíðarskipulag grunnskólamála í Skutulsfirði á næstu mánuðum og samþykkir að húsnæði grunnskóla verði sett framar í forgangsröðina en húsnæði leikskóla.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekari valkostagreiningu ásamt því að gera gróft kostnaðarmat. Einnig verður skoðað hvort hægt sé að rýna innra fyrirkomulag með tilliti til betri nýtingar og bættum aðbúnaði starfsmanna.
Hafdís Gunnarsdóttir yfirgaf fund kl. 09:24.

Gestir

  • Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:53

4.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - forsendur - 2026030243

Lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, og Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 7. september 2026, varðandi forsendur fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar 2027, en lagt er til við bæjarráð að taka afstöðu til framlagðra forsendna.
Bæjarráð samþykkir þær forsendur fjárhagsáætlunar 2027 sem fram koma í minnisblaði óbreytt en skal jafnframt áréttað að gjaldskrár á skóla- og íþróttamála voru samþykktar án hækkana með gildistöku frá 1. ágúst 2026 og gilda til sumarsins 2027.
Edda María Hagalín yfirgaf fund kl. 09:37.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 09:25

5.Uppbyggingaverkefni innan áfangastaðaáætlunar 2026 - 2026080180

Lagður fram tölvupóstur frá Vestfjarðastofu, dags. 19. mars 2026, þar sem óskað er eftir yfirferð uppbyggingarverkefna Ísafjarðarbæjar innan Áfangastaðaáætlunar Vestfjarða. Jafnframt er lagt fram minnisblað Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, upplýsingafulltrúa, og Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dags. 31. ágúst 2026, um stöðu verkefnanna.

Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til þeirra verkefna sem hér eru til umfjöllunar, þar á meðal hvort verkefni skuli áfram vera hluti af uppbyggingarverkefnum í áfangastaðaáætlun Vestfjarða, hvort áfangastaðir skuli felldir út úr áætluninni og hvort ný verkefni skuli lögð fram til innkomu í áætlunina. Niðurstaða bæjarráðs verður lögð til grundvallar svari Ísafjarðarbæjar við erindi Vestfjarðastofu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að breyta minnisblaði í samræmi við umræður á fundi og senda inn til Vestfjarðastofu.
Eyþór Guðmundsson, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir og Axel R. Överby yfirgáfu fund kl. 09:50

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 09:39
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir - mæting: 09:39

6.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183

Lagðir fram til staðfestingar þrír vinnslusamningar vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2025-2026.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi vinnslusamninga.

7.71. Fjórðungsþing Vestfirðinga - að hausti - 2026090067

Lögð fram til kynningar boð á 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti, sem haldið verður á Patreksfirði 27.-28. október 2026, auk kvöldverðar 26. október. Minnt er á að allar ályktanir þurfa að berast skriflega á þingið.

Hvatt er til skráningar bæjarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar og áréttað að bæjarfulltrúar skrái sig á þingið.

8.Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi 2026 - 2026090070

Lagt fram til kynningar erindi Sigurðar Jökuls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Cruise Iceland, dags. 1. september 2026, varðandi stöðu og horfur skemmtiferðaskipageirans á Íslandi.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í hafnarstjórn og felur bæjarstjóra að taka saman minnisblað um bókunarstöðu skemmtiferðaskipa í Ísafjarðarbæ næstu árin.

9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - breyting á lögum um skatta og gjöld - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi fjármála- og efnahagsráðuneytið, dags. 4. september 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 167/2026, "Áform um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (innheimta, tollar o.fl.)". Umsagnarfrestur er til og með 18. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - lög um kílómetragjald - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 2. september 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 164/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025". Umsagnarfrestur er til og með 16. september 2026
Lagt fram til kynningar.
Bryndís Ósk Jónsdóttir yfirgaf fund kl. 09:56.

11.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi dómsmálaráðuneytisins, dags. 2. september 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 163/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi)". Umsagnarfrestur er til og með 16. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Aðalfundur 2026 - Byggðasafn Vestfjarða - 2026040231

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Byggðasafns Vestfjarða haldinn 11. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

13.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677 - 2608011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 677. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn, að heimila breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, með hliðsjón af auknu afhendingaröryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi drög, að núverandi landnotkunarflokkar verði áfram verslun og þjónusta annars vegar og athafnasvæði hins vegar í nýju aðalskipulagi.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja ákvæði hverfisverndar í þéttbýli á svæðum HV-20 og Hv-8, í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.

15.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 48 - 2608019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 7. september 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.

16.Velferðarnefnd - 506 - 2607003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 506. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:04.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?