Velferðarnefnd

506. fundur 27. ágúst 2026 kl. 14:00 - 15:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varaformaður
  • Sigþór Snorrason aðalmaður
  • Grétar Örn Eiríksson Kratsch aðalmaður
  • Rúnar Helgi Haraldsson varamaður
    Aðalmaður: Úlfar Logason
  • Salbjörg Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Þórunn Sunneva Pétursdóttir ráðgjafi á velferðarsviði
  • Jóhanna Gréta Hafsteinsdóttir ráðgjafi
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá

1.Tilboð um þjónustu Bergsins headspace við ungmenni Ísafjarðarbæjar - 2026080103

Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins headspace mætti til fundar við velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar til þess að kynna starfsemi Bergsins og fjalla um tilboð um þjónustu Bergsins við ungmenni Ísafjarðarbæjar.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð Bergsins headspace um þjónustu við ungmenni Ísafjarðarbæjar.
Eva Rós Ólafsdóttir yfirgaf fundinn kl. 14.15.

Gestir

  • Eva Rós Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins - mæting: 14:00

2.Gjaldskrár 2027 - 2026030239

Önnur umræða um gjaldskrá velferðarsviðs fyrir árið 2027. Lögð fram greinargerð, dagsett 25. ágúst 2026 frá Hörpu Stefánsdóttur deildarstjóra í félagsþjónustu um undirbúningsvinnu gjaldskrá 2027.
Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar samþykkir framlögð drög að gjaldskrá og leggur til við bæjarstjórn að þau verði samþykkt.
Edda María Hagalín yfirgaf fundinn klukkan 15.11.

Gestir

  • Edda María Hagalín - mæting: 14:15

3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndar, á fundi 675, þann 7. júlí 2026, að vísa þeim köflum aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar.

Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 8 - Byggð, kafli 10 - Samfélagsþjónusta, kafli 11 - Útivist, opin svæði og íþróttir, kafli 13 - Samgöngur.
Velferðarnefnd óskar eftir frekari kynningu á aðalskipulagi í þeim málaflokkum sem heyra undir velferðarsvið. Jafnframt leggur velferðarnefnd til að málið verði lagt fyrir öldungaráð og notendaráð á grundvelli hlutverks þeirra.

4.Ýmis erindi velferðarsviðs - 2025110195

Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnir samstarf á Vestfjörðum um barnaverndarþjónustu og málefni fatlaðra á grundvelli samnings um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum.
Velferðarnefnd frestar kynningunni til næsta fundar.

5.Fullnaðarákvarðanir 2026 - 2025120075

Lagðar fram upplýsingar um fullnaðarafgreiðslu mála í félagsþjónustu á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar fyrir júní og júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Dómsmálaráðuneytinu nr. 109/2026, Drög að skýrslu um Allsherjaúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála. Umsagnarfrestur er til og með 10. júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu nr. 128/2026, Áform um breytingu á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Umsagnarfrestur er til og með 11. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu mál nr. 132/2026, Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Umsagnarfrestur er til og með 29. júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu nr. 133/2026, Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007. Umsagnarfrestur er til og með 14 ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu mál nr. 140/2026, Frumvarp til laga um barnavernd. Umsagnarfrestur er til og með 04. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Ýmis erindi velferðarsviðs - 2025110195

Lagður fram ársreikningur NPA miðstöðvarinnar vegna ársins 2025 auk skýrslu stjórnar vegna stjórnartímabilsins frá 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?