Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Kristján Ingvi Ólason, Gnýr Guðmundsson, Ólafur Már Þrastarson og Kristinn Magnússon hjá Landsneti ásamt ráðgjöfum Landsnets, þau Erla Bryndís Kristjánsdóttir og Einar Jónsson hjá Verkís ehf., mæta á fjarfund kl. 13:30.
1.Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu - 2026020060
Fulltrúar Landsnets hf. mæta til fundar um fjarfundarbúnað, með skipulags- og mannvirkjanefnd og ræða vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Breiðadalslínu 1, greinargerð með uppdrætti unnin af ráðgjöfum Verkís ehf. dags. 8. maí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn, að heimila breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, með hliðsjón af auknu afhendingaröryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
Kristján Ingvi Ólason, Gnýr Guðmundsson, Ólafur Már Þrastarson og Kristinn Magnússon hjá Landsneti og ráðgjafarnir Erla Bryndís Kristjánsdóttir og Einar Jónsson hjá Verkís ehf., yfirgefa fjarfund kl. 14:00.
Gestir
- Erla Bryndís Kristjánsdóttir - mæting: 13:30
- Kristján Ingvi Ólason - mæting: 13:30
- Gnýr Guðmundsson - mæting: 13:30
- Ólafur Már Þrastarson - mæting: 13:30
- Einar Jónsson - mæting: 13:30
- Kristinn Magnússon - mæting: 13:30
Gunnar Gaukur Magnússon mætir til fundar kl. 14:00, Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund mætir til fjarfundar kl. 14:00.
Erla Bryndís Kristjánsdóttir mætir til fjarfundar kl. 14:00 og Gunnar Páll Eydal mætir til fundar kl 14:00.
Erla Bryndís Kristjánsdóttir mætir til fjarfundar kl. 14:00 og Gunnar Páll Eydal mætir til fundar kl 14:00.
2.Ytri Veðrará í Önundarfirði. Umsókn um skipulag - 2025090035
Landeigendur á Ytri Veðrará í Önundarfirði hafa óskað eftir að aðalskipulagið taki mið af áformum þeirra um uppbyggingu grænna iðngarða, m.a. gagnavers og fiskeldis (reitur i-6 í kafla 15.7 í drögum að vinnslutillögunni. Gunnar Gaukur Magnússon, mætir til fundar til að kynna verkefnið.
Í drögum að vinnslutillögunni er gert ráð fyrir vistvænum iðnaði í samræmi við áherslur hringrásarhagkerfisins. Sjá kafla 15.7 í greinargerð í drögum að vinnslutillögunni.
Taka þarf afstöðu til óska landeigenda.

Nefndin þakkar fundargestum fyrir góða kynningu.
Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund yfirgefur fjarfund klukkan 14:52 og Gunnar Gaukur Magnússon yfirgefur fund klukkan 14:52.
Gestir
- Gunnar Páll Eydal - mæting: 14:00
- Erla Bryndís Kristjánsdóttir - mæting: 14:00
- Gunnar Gaukur Magnússon - mæting: 14:00
- Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund - mæting: 14:00
3.Tunguskeið, aðalskipulag. Breytt landnotkun - 2025010079
Í drögum að vinnslutillögu aðalskipulagsins er gert ráð fyrir athafnasvæði (AT-8 í kafla 15.2), iðnaðarsvæði (i-32 í kafla 15.7) og verslun og þjónustu (VÞ-27 í kafla 15.21) í ysta hluta Tunguskeiðis. Svæði fyrir íbúðarbyggð (ÍB-2) nær að Tungubraut 2-16. Svæðið verður viðbót við iðnaðar- og athafnasvæðið á Suðurtanga en talsverð eftirspurn hefur verið eftir lóðum þar síðustu misseri.
Sjá einnig kafla 9.6.2 í greinargerð í drögum að vinnslutillögunni.
Taka þarf ákvörðun um landnýtingu á svæðinu.
Sjá einnig kafla 9.6.2 í greinargerð í drögum að vinnslutillögunni.
Taka þarf ákvörðun um landnýtingu á svæðinu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi drög, að núverandi landnotkunarflokkar verði áfram verslun og þjónusta annars vegar og athafnasvæði hins vegar í nýju aðalskipulagi.
4.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050. Hverfisvernd í þéttbýli - 2025060065
Lagt fram minnisblað unnið af ráðgjöfum Verkís dags. 19. ágúst 2026, fyrir Ísafjarðarbæ vegna hverfisverndar í þéttbýli.
Gamli bærinn á Skutulsfjarðareyri (HV-20) sem er verndarsvæði í byggð heldur ákvæðum úr gildandi aðalskipulagi. Ákvæðin hafa þó verið einfölduð og gerð skýrari. Aðrir þéttbýliskjarnar og hluti Skutulsfjarðareyrar (HV-8) fá nú heldur mildari hverfisverndun en í gildandi aðalskipulagi. Hverfisverndarákvæði Neðstakaupstaðar (HV-13) eru óbreytt.
Sjá kafla 8.1.2 og ákvæði í kafla 16.1. í drögum að vinnslutillögunni.

Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja ákvæði hverfisverndar í þéttbýli á svæðum HV-20 og Hv-8, í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
5.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050. Samráð - 2025060065
Lögð fram atriði varðandi samráð í endurskoðun á aðalskipulagi, við kynningu á vinnslutillögu.
Lagt er til að eftirfarandi leiðir verði farnar:
Opin hús (nú þegar hefur einn viðburður verið í hverjum byggðakjarna)
Island.is - Betra Ísland vefsjáin er nú þegar opin
Heimasíða Ísafjarðarbæjar
Kynningarvefsjá fyrir almenning
Kynningarfundir í þéttbýliskjörnum - vinnslutillaga (október 2026)
Hverfisráð - bjóða á opið hús/fundi
Félagasamtök - greina þeim frá vinnunni og/eða bjóða á opin hús/fundi

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að vinna málið áfram.
6.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050. Landbúnaðarland í Leirufirði - 2025060065
Í drögum að vinnslutillögunni er jörðin Leira í Leirufirði í Jökulfjörðum skilgreind sem óbyggt svæði en ekki landbúnaðarsvæði eins og er í gildandi aðalskipulagi. Leira er eina jörðin í Jökulfjörðum og Hornströndum sem er skilgreind sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi en ekki er lengur stundaður landbúnaður á jörðinni.
Breytt stefna er í samræmi við aðrar jarðir norðan Djúps. Þar gilda ákvæði um óbyggð svæði (kafli 7 í drögum að vinnslutillögu) og ákvæði hverfisverndar (HV-18, kafli 16.1) sem heimila vissa uppbyggingu.
Taka þarf ákvörðun um landnýtingu á jörðinni.

Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir afstöðu landeigenda til erindis.
7.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050. Þingeyrarflugvöllur - 2025060065
Áfram er gert ráð fyrir Þingeyrarflugvelli í drögum að vinnslutillögunni. Flugvöllurinn er ekki í föstum rekstri í dag en er skráður lendingarstaður skv. skilgreiningu Isavia. Árið 2023 lýsti Isavia yfir áhuga á að selja flugstöðina.
Sjá ákvæði í kafla 15.4 og kafla 13.3 í drögum að vinnslutillögunni.
Taka þarf ákvörðun um framtíð flugvallarins og landnýtingu á svæðinu.
Sjá ákvæði í kafla 15.4 og kafla 13.3 í drögum að vinnslutillögunni.
Taka þarf ákvörðun um framtíð flugvallarins og landnýtingu á svæðinu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur ekki tímabært að fara í skipulagsbreytingar m.t.t. flugvallar að svo stöddu.
Erla Bryndís og Gunnar Páll yfirgáfu fund kl. 15:45.
8.Umsagnarbeiðni. Breyting á Breiðdalslínu 1 í Dýrafirði - 2026060069
Lagt fram til kynningar, álit Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsgátt, dags. 23. júlí 2026, vegna tilkynningar um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu), Breyting á Breiðdalslínu 1 í Dýrafirði, Ísafjarðarbæ, mál nr. 0587/2026. Framkvæmdin felur í sér lagningu um 4,23 km 132 kV loftlínu við sunnanverðan Dýrafjörð frá Dýrafjarðargöngum að Dýrafjarðarbrú og er liður í styrkingu flutningskerfisins á Vestfjörðum. Kynningartími var frá 12. maí 2026 til og með 10. júní 2026.
Niðurstaða HMS er að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Samkvæmt 30. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 22. ágúst 2026.

Lagt fram til kynningar.
9.Umsagnarbeiðni vegna aukins sjókvíaeldis í Arnarfirði, Arnarlax - 2025030022
Lagt fram tilkynning um álit Húsnæðis- mannvirkja og skipulags, úr skipulagsgátt, mál nr. 591/2023, um umhverfismatsskýrslu Arnarlax á auknu sjókvíaeldi í Arnarfirði úr 11.500 tonna hámarkslífmassa í 16.000 tonn og stækka eldissvæðin úr 5,9 km2 í 29 km2.
Með fyrirhugaðri 4.500 tonna eldisaukningu er verið að fullnýta 20.000 tonna burðarþol Arnarfjarðar. Með auknum lífmassa mun álag á lífríki í Arnarfirði aukast staðbundið. Stækkun eldissvæða þýðir einnig að lífríki á mun stærra svæði getur orðið fyrir áhrifum frá eldinu.
Að mati HMS er óvissa um áhrif framkvæmdarinnar á strandsjávarhlotið Arnarfjörð og hvort það nái umhverfismarkmiðum sínum um gott vistfræðilegt og efnafræðilegt ástand.

10.Hvítisandur. Ósk um umsögn vegna beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð - 2025110057
Lögð fram upplýsingabeiðni frá félags- og húsnæðisráðuneytinu, dags. 19. ágúst 2026, vegna umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar dags. 27. júlí 2026, vegna uppfærðrar beiðni um undanþágu frá ákvæði skipulagsreglugerðar um fjarlægð byggingarreitar frá vötnum, ám eða sjó vegna byggingar aðstöðu til sjó- og gufubaða í fjöruborði í landi Þórustaða í Önundarfirði.
Í umsögninni koma fram ákveðin atriði sem beint er að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Að því tilefni óskar ráðuneytið eftir upplýsingum um hvort bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar telji ástæðu til þess að bregðast við þeim sjónarmiðum sem stofnunin kemur á framfæri í umsögn sinni.
Þess er óskað að upplýsingarnar berist ráðuneytinu eigi síðar en 9. september 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfandi skipulagsfulltrúa að óska eftir gögnum sem vísað er til í umsögn HMS, frá skipulagsráðgjafa.
11.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173
Lagt fram til kynningar, afgreiðsla HMS vegna athugunar fyrir auglýsingu á breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010, vegna afþreyingar- og ferðamannasvæðis, ásamt verslunar- og þjónustusvæðis á Eyrarfjalli/Eyrarkláfs, dags. 30. júlí 2026.
HMS hefur farið yfir framlögð gögn og gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga þegar brugðist hefur verið athugasemdum stofnunarinnar.
Jafnframt er bendir HMS á að í Skipulagsgátt má sjá að auglýsing deiliskipulagstillagna fyrir svæðið er hafin. HMS minnir á ákvæði skipulagslaga þess efnis að sé tillaga að deiliskipulagi ekki í samræmi við aðalskipulag skal samsvarandi aðalskipulagsbreyting auglýst áður eða samhliða sbr. 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir uppfærðum gögnum frá skipulagsráðgjafa með hliðsjón af athugasemdum HMS og að uppfæra skipulagsgögn eftir því sem við á.
Að lokinni yfirferð verði málið lagt að nýju fyrir nefndina til afgreiðslu.
Að lokinni yfirferð verði málið lagt að nýju fyrir nefndina til afgreiðslu.
Fundi slitið - kl. 16:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?