Menning barna og ungmenna

Í aðdraganda ráðstefnunnar Menning og listir á Vestfjörðum lítum við til baka og skoðum hvað hefur áunnist í þeim áherslum sem settar voru fram í Menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2022–2032.

Ein af áherslum stefnunnar er að sveitarfélagið leggi sérstaka áherslu á menningu barna og ungmenna. Markmiðið tengist jafnframt leiðarljósi stefnunnar um að allir íbúar fái að njóta menningar og lista og geti tekið þátt á eigin forsendum.

Á undanförnum árum hefur verið unnið að þessari áherslu með ýmsum hætti. Verkefni, vinnustofur og viðburðir sem beinast að börnum og ungmennum hafa fengið aukið vægi við mat á umsóknum um styrki til menningarmála hjá menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar.

Dæmi um verkefni sem hafa hlotið vilyrði fyrir styrk eru:

  • Vekjandi listasmiðja fyrir börn – 2025
  • Listasmiðja fyrir börn í dymbilviku – 2025
  • Skapandi fjölskyldusmiðja fyrir páska – 2024
  • Námskeið í bangsagerð fyrir börn – 2023
  • Ukulelenámskeið fyrir börn – 2023
  • Söngleikir og leiklistarstarf nemenda Menntaskólans á Ísafirði – 2023–2025

Samhliða hefur verið horft til þess að auðvelda ungum listamönnum og listamönnum úr jaðarsettum hópum aðgengi að styrkjum.

Söfn, tengsl við skóla og hátíðir

Söfn og menningarstofnanir Ísafjarðarbæjar gegna einnig mikilvægu hlutverki í menningu barna og fjölskyldna. Á bókasafninu má meðal annars nefna sumarlestur, saumastundir og foreldramorgna, sem skapa fjölbreytt tækifæri til samveru, þátttöku og sköpunar. Samhliða gefa söfnin börnum og ungmennum tækifæri til að kynnast myndlist, bókmenntum, sögu og menningararfi og tengjast menningu á eigin forsendum.
 

Einnig hefur verið unnið að auknum tengslum skóla og menningarstofnana. Samtal hefur farið fram milli forstöðumanna um heimsóknir skólahópa á söfn og samstarf leik-, grunn- og framhaldsskóla við menningarstofnanir hefur meðal annars birst í verkefnum í tengslum við verkefni á landsvísu. Sú vinna styður einnig við markmið stefnunnar um að efla samstarf menningarstofnana, fræðslustofnana og fólks sem starfar að listum og menningu.

Næstu skref

Næsta skref er að styrkja þessa vinnu enn frekar. Árið 2027 tekur gildi þríhliða þjónustu- og styrktarsamningur ríkisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins um eflingu menningarstarfs. Framlag Ísafjarðarbæjar vegna samningsins er áætlað 30 milljónir króna á móti 30 milljóna króna framlagi ríkisins. Einnig verður unnið að nýrri aðgerðaáætlun menningarstefnunnar, áframhaldandi endurnýjun Safnahússins og viðhaldi útilistaverka

Jafnfram fer barnamenningarhátíðin Púkinn fram á Vestfjörðum. Vestfjarðastofa annast verkefnisstjórn hátíðarinnar en menningarstofnanir, skólar, einstaklingar og samtök standa að einstökum viðburðum. Barnamenningarhátíðin var fyrst haldin árið 2023 og völdu grunnskólabörn á Vestfjörðum nafnið Púkinn fyrir hátíðina.

Áherslan verður áfram lögð á að bjóða börnum og ungmennum upp á menningarviðburði en einnig að gefa þeim rými til að skapa, taka þátt og hafa áhrif á menningarlífið í sveitarfélaginu.

Lesa Menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2022–2032