Menning og listir á Vestfjörðum – ráðstefna á Ísafirði
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman listafólk, menningarstofnanir, hagaðila, sveitarfélög og ráðuneyti til samtals um stöðu, styrkleika og framtíðartækifæri menningar og skapandi greina á Vestfjörðum.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Edinborgarhúsið.
Skráning til 23. nóvember
Ráðstefnan er opin öllum á meðan húsrúm leyfir og þátttaka er ókeypis. Skráning er nauðsynleg og er opin til mánudagsins 23. nóvember.
Hádegisverður er í boði ráðuneytisins. Gestir greiða sjálfir fyrir kvöldverð og þarf að skrá sig sérstaklega í hann.
Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi.
Menning, lífsgæði og öflug samfélög
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig efla megi menningarstarf og skapandi greinar á Vestfjörðum, styrkja innviði og skapa fjölbreyttari tækifæri til listsköpunar og menningarþátttöku.
Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi menningar fyrir lífsgæði, byggðaþróun og öflug samfélög. Einnig verður fjallað um hvernig tryggja megi aðgengi að listum og menningu óháð búsetu og efnahag.
Viðburðurinn er liður í vinnu ráðuneytisins við að efla samtal við menningarlífið um land allt og byggja upp stuðningskerfi sem tekur mið af sérstöðu, styrkleikum og þörfum hvers landshluta.
Dagskrá
Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
09:00 – Setning ráðstefnu, Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
09:20 – Ávarp – Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og undirritun menningarsamnings
09:40 – Stefna Edinborgarhússins, Ingi Björn Guðnason
09:55 – Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
10:20 – Kaffihlé
10:30 – Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarða
10:50 – Signý Ormarsdóttir, fyrrverandi menningarfulltrúi Austurlands
11:20 – Hátíðir, erindi frá listafólki og frumkvöðlum á Vestfjörðum
12:15 – Hádegisverður í Edinborgarhúsinu í boði ráðuneytisins
13:00 – Listamiðstöðvar og sjóðir, stutt kynning
13:30 – Menningarstofnanir og Listaháskólinn, samtal og samstarf við Vestfirði
15:00 – Gullkistan Vestfirðir – menning og skapandi greinar, Bryggjusalur
16:00 – Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða, Edinborgarsalur
18:30 – Kvöldverður, skráning í kvöldverð
Aðgangur að ráðstefnunni er án endurgjalds en gestir greiða kvöldverð sjálfir.
Hótel Ísafjörður býður gestum tilboð á gistingu, sjá hér.