Dokkan og Bakkarnir
Í daglegu tali er Dokkan svæðið við rækjuverksmiðjuna Kampa en sjálf skipakvíin, eða dokkan, var fyllt upp um 1960. Hún er því ekki sjáanleg lengur en svæðið í kring tók nafn sitt af henni. Dokkan var fyrsta skipakví sinnar gerðar á Íslandi. Hún var byggð árið 1857 að tilstuðlan eigenda hákarlaskipa sem þar með komu skipum sínum í var yfir veturinn án þess að þurfa að draga þau á land.
Bakkarnir eru svæðið frá Dokkunni og að Norðurtanganum þar sem nú er Sundstræti. Húsin við götuna stóðu við sjávarbakkann og þannig er nafnið tilkomið. Líkt og með Norðurtangann og Dokkuna var fyllt upp í svæðið til að búa til land til húsbygginga og þar með hurfu bakkarnir en heitið stóð eftir. Herdís Albertsdóttir bjó í Albertshúsi við Sundstræti frá 1908-2011 og var alla tíð kölluð Dísa á Bökkunum.




Myndir: Ljósmyndasafnið Ísafirði
Texti: Jóna Símonía Bjarnadóttir