Skutulsfjarðareyri

Skutulsfjarðareyri, sem Ísafjörður stendur á, gengur beint fram af Eyrarfjalli en tekur sveig til suðurs og myndar Pollinn, einu bestu höfn á Íslandi frá náttúrunnar hendi. Segja má að uppbygging bæjarins eigi einmitt rætur í þessari skjólgóðu höfn.

Út í Pollinn lágu áður fjölmargar bryggjur sem gjarnan voru nefndar eftir eigendum sínum eða staðsetningu s.s. Edinborgarbryggja og Torfnesbryggja. Árið 1934 var byggð bátahöfn Pollmegin við svonefnd Mjósund en þar var eyrin mjóst og flæddi yfir á háflæði. Svæðið næst Mjósundum að ofanverðu er Miðkaupstaður en neðanvert er Suðurtangi með Neðstakaupstað.

 

Myndir: Ljósmyndasafnið Ísafirði
Texti: Jóna Símonía Bjarnadóttir