Tangagata

Þegar íbúum Ísafjarðarkaupstaðar tekur að fjölga um 1830 myndast húsagötur, að því er virðist án þess að vera formlega ákveðnar. Tangagata er ein þeirra en hún er orðin til um 1870 og tekur trúlega nafn sitt af staðsetningu sinni, gatan á tanganum. Næsta gata varð til á sama hátt en nafnið dregur hún af eldsmiðjunni sem þar stóð, Smiðjugata. Í þessum götum byggðu iðnaðarmenn sín litlu timburhús sem og kaupmenn sem síðar meir byggðu stórhýsi í jaðri byggðarinnar s.s. við Silfurgötu og Aðalstræti.

 

Myndir: Ljósmyndasafnið Ísafirði
Texti: Jóna Símonía Bjarnadóttir