Jónsgarður

Jónsgarður er elsti skrúðgarðurinn á Ísafirði, en vinna við hann hófst árið 1922. Það var Blóma- og trjáræktarfélag Ísafjarðar sem hafði forgöngu um gerð hans.

Hjónin Jón Jónsson klæðskeri og Karlinna Jóhannesdóttir unnu ötullega við uppbyggingu garðsins ásamt fjölda sjálfboðaliða úr bænum. Þau Jón og Karlinna sinntu svo garðinum allt til ársins 1977.

Árið 1935 var sett upp hlið úr hvalbeinum sem komu frá Uppsalaeyri í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp.
Þar höfðu Norðmenn reist hvalveiðistöð og mynduðu beinin hlið heim að íbúðarhúsi hvalveiðistjórans,Johans E. Stixrud.

Garðurinn var í daglegu tali nefndur Blómagarðurinn eða Efri blómagarðurinn en ber nú heitið Jónsgarður.

 

Myndir: Ljósmyndasafnið Ísafirði
Texti: Jóna Símonía Bjarnadóttir