Norðurtangi

Tveir tangar ganga út frá Skutulsfjarðareyri sem Ísafjörður stendur á. Til suðurs gengur Suðurtangi en til norðurs Norðurtangi sem nú er horfinn undir landfyllingar. Allt fram til ársins 1831 var enginn byggð á svæðinu en það ár byggði Halldór Jónsson snikkari sér hús í Norðurtanganum og smátt og smátt óx byggðin á svæðinu sem nú myndar Sundstræti, Tangagötu og Smiðjugötu. Við Norðurtangann var bryggja og þar byggðist upp eitt af þremur hraðfrystihúsum bæjarins, Hraðfrystihúsið Norðurtanginn. Nú hýsir það hús hátæknifyrirtækið Kerecis sem vinnur sáraumbúðir úr fiskroði sem og íbúðir.

Ísfirðingar tala um að fara að norðanverðu og sunnanverðu upp og niður eyrina. Að norðanverðu blasir við Snæfjallaströndin þar sem áður var blómleg byggð. Þar fyrir norðan eru Jökulfirðir og Hornstrandir en byggð þar lagðist af á 7. áratug 20. aldar. Hornstrandir eru nú friðland.

 

Myndir: Ljósmyndasafnið Ísafirði
Texti: Jóna Símonía Bjarnadóttir