Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026
Boðað hefur verið til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB laugardaginn 29. ágúst 2026.
Allar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu 2026 er að finna á kosningavef landskjörstjórnar, Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 og Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 | Ísland.is
Í Ísafjarðarbæ eru sex kjördeildir.
1.-3. kjördeild er í Grunnskólanum á Ísafirði - gengið inn frá Aðalstræti (sjá á korti)
Opið frá 9:00-20:00.
4. kjördeild er í Grunnskólanum á Suðureyri (sjá á korti)
Opið frá 9:00-18:00.
5. kjördeild er í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri (sjá á korti)
Opið frá 9:00-18:00.
6. kjördeild er í Grunnskólanum á Þingeyri (sjá á korti)
Opið frá 9:00-18:00.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi. Kjósendur geta kannað hvar þeir eiga að kjósa á vef Þjóðskrár.
Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Grunnskólanum á Ísafirði á kjördag.
Yfirkjörstjórn
Yfirkjörstjórn skal kosin á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar til fjögurra ára í senn. Yfirkjörstjórnir skulu jafnan vera reiðubúnar til þess að mæta fyrirvaralaust á fundi á kjördegi til ákvarðana og úrskurða í sambandi við kosninguna ef með þarf.
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar:
Kristín Þóra Henrysdóttir, kristinhenrysd@gmail.com, s. 823 2078.
Jóhanna Oddsdóttir, granigardur@hotmail.com, s. 848 0915
Guðný Stefanía Stefánsdóttir, gudnystef@simnet.is, s. 861 1072
Yfirkjörstjórn er með aðsetur í Grunnskólanum á Ísafirði á kjördag.
Kosið utan kjörfundar
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu sýslumanns.
Hæfi kjörstjórnarmanna
Í 18. gr. laganna segir:
Kjörstjórnarmaður, sbr. 15. gr., og fulltrúi í landskjörstjórn skal víkja sæti ef til úrskurðar er mál:
a. er varðar maka hans eða sambúðarmaka, enda sé sambúðin skráð í þjóðskrá, eða þann sem er skyldur honum eða mægður í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti við ættleiðingu, eða
b. ef að öðru leyti en greinir í a-lið eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.
Ágreiningi um hæfi kjörstjórnarmanns og fulltrúa í landskjörstjórn til að úrskurða í máli má skjóta til úrskurðarnefndar kosningamála skv. 22. gr.
Með öðrum orðum þýðir þetta að kjörstjórnarmaður er vanhæfur EF hann er tengdur frambjóðanda með eftirfarandi hætti OG verið er að úrskurða um mál þar sem vensl eru eftirfarandi:
- Er eða hefur verið maki frambjóðanda.
- Er eða hefur verið í skráðri sambúð með frambjóðanda.
- Er skyldur í beinan legg: Afi, amma, mamma, pabbi, barn eða barnabarn er frambjóðandi.
- Er skyldur í öðrum lið til hliðar: Systkini, frændsystkini, föður- eða móðursystkini er frambjóðandi.
- Mægður frambjóðanda í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar. Með mægðun er hér átt við tengsl sem stofnast gegnum hjúskap. Veldur það þá vanhæfni ef maki þinn er skyldur frambjóðanda sem segir í 3 og 4 lið.
- Skyldleiki samkvæmt 3. 4. og 5 lið gilda einnig um ættleiðingar.

Ef vafi leikur á um hæfi er kjörstjórnarmönnum bent á að hafa samband við yfirkjörstjórn.