Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
Á upplýsingasíðu Ísafjarðarbæjar má finna allar helstu upplýsingar um framkvæmd kosninganna í sveitarfélaginu, þar á meðal um kjörstaði, opnunartíma og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin
Kjósendur sem ekki geta kosið á kjördag geta greitt atkvæði utan kjörfundar. Upplýsingar um hvar og hvenær hægt er að kjósa utan kjörfundar má finna á upplýsingasíðu hjá sýslumannsembættum.
Kjörskrá
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi kjörskrár. Hægt er að kanna hvar þú átt að kjósa á vef Þjóðskrár.
Allar upplýsingar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunar hjá Ísafjarðarbæ á Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 | Ísafjarðarbær
