Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
94. fundur 24. september 2026 kl. 08:00 - 16:00 í fundarherbergi 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján S Kristjánsson byggingarfulltrúi
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Hermann G Hermannsson Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
Fundargerð ritaði: Kristján Svan Kristjánsson byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Brekka - Umfangsflokkur 1 - 2026090045

Lögð er fram umsókn Falk Kruger um byggingarheimild fyrir hönd Sandamanna ehf. Sótt er um heimild til að reisa tvö gestahús á jörðinni. Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá A2F arkitektum dags 03.07.2026 ásamt skráningartöflum.
Samþykkt. Byggingarheimild veitt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Séruppdráttum skal skilað áður en lokaúttekt fer fram.

2.Suðurtangi 1 - Umsókn um byggingarleyfi á nýrri slökkvistöð - 2026010384

Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 90 þar sem því var frestað og kallað eftir lagfæringum á aðaluppdráttum. Lagfærðir aðalupdrættir frá Glóra teiknistofu voru samþykktir 27.03.2026 og byggingaráform samþykkt.
Til viðbótar við áður framlögð gögn eru nú lagðir fram séruppdrættir burðarþols frá Glóra teiknistofu er snúa að undirstöðum, plötum, steyptum stigum og stálskyggi á útvegg.
Samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Takmarkað byggingarleyfi er veitt fyrir verkþáttum er snúa að samþykktum séruppdráttum. Vinna við aðra verkþætti er óheimil.

3.Mosvellir - Umfangsflokkur 1 - 2026090056

Lögð er fram umóskn Hallgríms Inga Jónssonar um byggingarheimild fyrir hönd Jóhanns Inga Þorsteinssonar. Sótt er um heimild til að byggja 118 m2 viðbyggingu úr timbri við núverandi húsnæði.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Stoð verkfræðistofu, dags. 27.07.2026.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að hönnuður lagfæri aðaluppdrætti með vísan í skoðunarskýrslu. Að öðru leiti samræmist umsóknin lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út er skilyrði gr. 2.3.8 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.

4.Torfnes - Umfangsflokkur 3 - 2026090284

Lögð er fram umsókn um byggingarleyfi frá Sigríði Halldórsdóttir fyrir hönd Framkvæmdarsýslunnar-Ríkiseignir. Sótt er um leyfi til endurbóta og breytinga innanhúss á sjúkrahúsinu.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá ASK arkitektum dags 04.09.2026
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út er skilyrði gr. 2.4.4 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.

5.Aðalgata 13 L141267; umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 1 - 2026090020

Lögð er fram umsókn Hollvinasamtaka Félagsheimilis Suðureyrar um byggingarheimild vegna viðbyggingar við félagsheimilið. Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Kjartani Árnasyni dags. 18.09.2026
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að hönnuður aðalupdrátta skili inn fullunnum aðaluppdráttum og skráningartöflu. Umsóknin samræmist að öðru leiti lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út er byggingarstjóri hefur verið skráður á verkið og eru framkvæmdir óheimilar þangað til.

6.Hafnarstræti 5 - Umfangsflokkur 1 - 2026060038

Lögð er fram umsókn Ólafs Hjördísarsonar Jónssonar um byggingarleyfi fyrir hönd Fjólubláu húfunnar ehf. Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun hússins og koma fyrir íbúð á efri hæð hússins. Eins er sótt um leyfi til þess að hækka þak hússins svo rishæð nýtist betur.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá KOA arkitektar dags. 13.07.2026
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa sem og í skýrslu eldvarnareftirlits.

7.Grænigarður - Umsókn um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar - 2023020096

Lögð er fram umsókn um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar á húsnæðinu, breytinga á ytra byrði ásamt því að skipta upp eigninni í 8 notkunarrými. Erindið var tekið fyrir á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar nr. 676 og gerði nefndin ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Eflu dags. 27.12.2022
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa.

8.Hrafnatangi - Móttökuhús - Umfangsflokkur 2 - 2026060195

Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 93 og voru byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að lagfærðir aðaluppdrættir myndu berast.
Nú eru lagðir fram lagfærðir aðaluppdrættir frá M11 arkitektum dags. 21.09.2026 og séruppdrættir burðaþols frá Ferill verkfræðistofu dags. 03.07.2026
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út er skilyrði gr. 2.4.4 sömu reglugerðar verða uppfyllt.

9.Garðahúsið Aðalvík - Umsókn um byggingarleyfi - Umfangsflokkur 1 - 2026060102

Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 93 og var því hafnað. Óskað var eftir uppfærðum aðaluppdráttum
Til viðbótar við áður framlögð gögn er nú lagður fram aðaluppdráttur frá Former arkitektum dags. 15.07.2026
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á samþykki Umhverfisstofnunar fyrir jarðraski vegna framkvæmdanna. Að öðru leiti samræmist umsóknin lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefið út er skilyrði gr. 2.3.8 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.
Umsækjanda er bent á að skila inn gögnum er óskað var eftir vegna leyfis fyrir niðurrifi.

10.Torfnes me - Umfangsflokkur 1 - 2026090057

Lögð er fram tilkynning um framkvæmdir frá Jóhanni Birki Helgasonar fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands vegna neyðarútganga við verkmenntahúsið. Tilkynnt erum að koma fyrir björgunaropum á efri hæð hússins ásamt felli- og hringstiga úr stáli.
Jafnframt er lagður fram uppdráttur frá Verkís er sýnir útlitsbreytingar hússins.
Samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012

11.Sundstræti 20, Ísafirði. Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026090300

Lögð er fram fyrirspurn Einars Þórðarsonar fyrir hönd Harðar Jakobssonar varðandi Sundstræti 20. Fyrirspurnin snýr að leyfismálum varðandi niðurrif á núverandi smíðahúsi annars vegar og byggingar á einbýlishúsi á lóðinni hinsvegar.
Vegna niðurrifs á húsi skal eigandi sækja um byggingarheimild vegna framkvæmdana og skila samhliða því inn gögnum er snúa að niðurrifi mannvirkja með vísan í byggingarreglugerð nr. 112/2012, veðbókarvottorði og starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða.
Hvað varðar byggingu einbýlishúss þá er lóðin skilgreind sem iðnaðar- og athafnarlóð. Er því erindi vísað til skipulags-og mannvirkanefndar til umfjöllunar.

12.Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026090058

Lögð er fram fyrirspurn Kristínar Rósu Ármannsdóttur um breytingar á húsnæðinu. Fyrirspurnin snýr að því bæta við fjórum gluggum á húsið í sama stíl og upprunalegu gluggarnir eru. Með framkvæmd þessari myndi notagildi hússins aukast og ásýnd batna.
Jafnframt eru lagðar fram teikningar sem sýna breytingarnar.

Umsækjanda er bent á að húsið er byggt árið 1910 og fellur því undir aldursfriðun. Þarf því Minjastofnun að leggja fram sína umsögn á erindinu.
Að öðru leiti er tekið vel í áformin. Leiðbeiningar verða sendar til umsækjanda um næstu skref.

13.Fjörugusa_Umsókn um stöðuleyfi - 2026090326

Lögð er fram umsókn Halldórs Karls Valssonar um stöðuleyfi vegna gufubaðs sem kallast Fjörugusan. Um er að ræða framlengingu á áður útgefnu stöðuleyfi vegna gusunnar.
Jafnframt er lögð fram ljósmynd er sýnir staðsetningu og útlit.
Þar sem stöðuleyfi eru veitt til hámark 12 mánaða og eru ekki hugsuð sem varanleg úrræði er málinu vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar til umfjöllunar.

14.Sjávargata 4_Umsókn um stöðuleyfi - 2026090327

Lögð er fram umsókn B12 Bryggjan ehf. um stöðuleyfi fyrir gám er hugsaður er sem lagerpláss fyrir söluskálann Bryggjustöðin.
Jafnframt er lögð fram loftmynd sem sýnir staðsetningu gáms.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til 12 mánaða. Þar sem stöðuleyfi eru að hámarki veitt til 12 mánaða er umsækjandi hvattur til þess að leita sér varanlegra lausna þegar kemur að lagerplássi fyrir næsta ár.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?